Hagnaður Samherja hf. 3,1 milljarður króna 31. mars 2006 12:25 Þorsteinn Vilhelmsson EA 11, fjölveiðiskip Samherja hf.
Hagnaður Samherja hf. nam rétt rúmum 3 milljörðum króna á síðasta ári. Þetta er 190 milljónum króna meira en árið 2004. Rekstrartekjur námu tæpum 21,3 milljörðum króna og jukust þær um ríflega 27 prósent frá árinu á undan. Aukningin stafar að stærstum hluta af áhrifum dótturfélaga sem nú eru að fullu inni í rekstrartekjum ársins 2005 auk sölu fastafjármuna, að því er fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Rekstargjöld ársins námu 17.370 milljónum króna og hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 3.921 milljón króna. Afskriftir voru 1.459 milljónir króna og voru fjármagnsliðir voru jákvæðir um 1.227 milljónir. Hlutdeild í hagnaði hlutdeildarfélaga nam 195 milljónum, hagnaður fyrir tekjuskatt var 3.884 milljónir og hagnaður eftir tekjuskatt og hlutdeild minnihluta nam 3.104 milljónum króna eins og áður segir. Veltufé frá rekstri var 1.416 milljónir króna og handbært fé frá rekstri 1.012 milljónir. Heildareignir Samherja hf. í árslok 2005 voru bókfærðar á 28.687 milljónir króna. Skuldir og skuldbindingar samstæðunnar námu 21.233 milljónum króna, hlutdeild minnihluta í eigin fé nam 361 milljón og var bókfært eigið fé samstæðunnar í árslok 7.094 milljónir króna. Í árslok var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 25 prósent en var áður 43 prósent og stafar lækkunin af samruna við Fjárfestingafélagið Fylki ehf. en við samrunann lækkar eigið fé Samherja um 6.885 milljónir króna. Nettóáhrif dótturfélaga á rekstur Samherja voru neikvæð um 240 milljónir króna á árinu og munar þar mestu um áhrif Oddeyrar ehf. sem rekin var með verulegu tapi á árinu. Á hinn bóginn skila öll erlend dótturfélög Samherja góðum hagnaði. Þá segir jafnframt að þrátt fyrir að úthlutaður loðnukvóti á síðustu vetrarvertíð hafi verið mun minni en væntingar stóðu til og vertíðin staðið stutt eru horfur ársins þokkalegar. Skýrist það annars vegar af góðu verði fyrir afurðir á helstu mörkuðum félagsins og hins vegar að gengi íslensku krónunnar er að færast nær því gildi sem telja má viðunandi fyrir starfsumhverfi íslenskra útflutningsgreina, að því er segir í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Viðskipti innlent Z-kynslóðin fílar ekki stjórnunarstílinn og hættir Atvinnulíf Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Viðskipti innlent Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Viðskipti innlent Virða niðurstöðu Íslandsbanka Viðskipti innlent Rukka í „rennuna“ á flugvellinum Neytendur Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Viðskipti innlent Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Viðskipti innlent Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Viðskipti innlent Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna á Coda stöð við Húsavík Góa tekur yfir framleiðslu á Omnom Önnur Airbus-þotan væntanleg á morgun Kaupin á TM gengin í gegn fyrir ríflega þrjátíu milljarða króna Tveir af hverjum þremur andvígir sameiningu bankanna Skella sér í sósur og ís fyrir fjóra milljarða Virða niðurstöðu Íslandsbanka „Við sem neytendur eigum ekki að sætta okkur við þetta“ Íslandsbanki afþakkar boð Arion um samrunaviðræður Forstjóri ÁTVR lætur af störfum Mátti greiða himinháan reikning korter í þrot eftir allt saman Misstu þrjá dróna í gosið við tökur á sýningunni Nýjar verðbólgutölur gefa von um hraðari lækkun vaxta Björn hvergi af baki dottinn í milljarðadeilu Verðbólga 4,2 prósent og ekki minni í fjögur ár Gefa út afkomuviðvörun vegna dómsins Síminn þarf að greiða 400 milljónir króna Segir allar ásakanir fullkomlega tilhæfulausar Bein útsending: „Landbúnaður er almannahagsmunir“ Strákar og stálp fá styrk Umdeild viðskipti fá ekki áheyrn Hæstaréttar Hildur ráðin forstjóri Advania Atvinnuleysi eykst Skipti í brúnni hjá Indó Smári Rúnar ráðinn fjármálastjóri „Það er gjá að myndast á leigumarkaðnum“ Viðar nýr sölustjóri Wisefish Ráðinn framkvæmdastjóri COWI á Íslandi Semja um fjögurra milljarða króna lán Þak styrkja til turnanna tveggja lækkað Sjá meira