Fjórir í gæsluvarðhaldi vegna stórs fíkniefnamáls 17. apríl 2006 18:45
Fjórir menn, þrír Íslendingar og einn Hollendingur, voru úrskurðaðir, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í þriggja vikna gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna eins stærsta fíkniefnamáls sem komið hefur upp hérlendis. Gríðarlegt magn fíkniefna fannst í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík á fimmtudagskvöld.Lögreglan í Reykjavík rannsakar málið en það var samvinna lögreglunnar og tollgæslunnar sem varð til þess að efnin fundust. Ekki náðist í forsvarsmenn fíkniefnadeildarinnar í Reykjavík í dag. Samkvæmt heimildum er málið trúlega eitt það stæsta sem upp hefur komið á Íslandi til þessa en um er að ræða gífurlegt magn amfetamíns, jafnvel tugi kílóa en eins fannst einhvert magn af hassi. Það að mennirnir fjórir voru úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald strax við upphaf rannsóknar staðfestir að málið sé stórt. Lögreglan kom að þremur mannanna þar sem þeir voru að tæma fíkniefnin úr bíl í iðnaðarhúsi á Höfðanum í Reykjavík á fimmtudagskvöld en fjórði maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi er eigandi bílsins. Einn mannanna var dæmdur í níu ára fangelsi árið 2000 fyrir þátt sinn í stóra fíknaefnamálinu svokallaða og var hann því á reynslulausn eftir að hann hafði afplánað um helming fangelsisvistarinnar. Þá er einn fjórmenningana þekktastur fyrir að hafa verið framseldur hingað til lands frá Hollandi vegna hvarfs Valgeirs Víðissonar.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara Innlent Fleiri fréttir Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Sjá meira