Spánverjar í góðum málum 21. ágúst 2006 15:15 Pau Gasol og félagar í spænska landsliðinu unnu öruggan sigur á Þjóðverjum í dag NordicPhotos/GettyImages
Spánverjar tryggðu sér í dag sæti í 16-liða úrslitunum á HM í körfubolta sem fram fer í Japan með öruggum 92-71 sigri á Þjóðverjum í dag. Spánverjar hafa unnið alla þrjá leiki sína á mótinu til þessa, en Þjóðverjar ættu að komast áfram þrátt fyrir tapið. Liðið hefur unnið tvo leiki og tapað einum. Juan Carlos Navarro skoraði 20 stig fyrir Spán, Jose Calderon skoraði 19 og Pau Gasol 16 stig - en það var öðru fremur góður varnarleikur liðsins gegn Dirk Nowitzki sem lagði grunninn að góðum sigri Spánverja, en Nowitzki tók aðeins 9 skot í leiknum og endaði með 14 stig. Frakkar unnu varnarsigur á Nígeríumönnum 64-53 og hafa nú unnið tvo af þremur leikjum sínum á mótinu, sem ætti að nægja liðinu til að komast áfram án leikstjórnanda síns Tony Parker frá San Antonio Spurs, sem er meiddur. Þá unnu Serbar sinn fyrsta leik í þremur tilraunum á mótinu þegar liðið burstaði Líbanon 104-57, þar sem Darko Milicic skoraði 20 stig og hitti úr 8 af 11 skotum sínum.
Erlendar Íþróttir Körfubolti Mest lesið Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Fótbolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Fótbolti Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira