Naumur sigur Akureyri á Fylki 6. nóvember 2006 20:39
Akureyri komst upp fyrir Fylki og í 3. sæti DHL-deildar karla í handbolta með því að sigra Árbæjarliðið á heimavelli sínum í kvöld, 30-27. Akureyri er nú komið með 5 stig eftir fjóra leiki en Fylkir er með sama stigafjölda eftir fimm leiki. Eftir að hafa verið þremur mörkum undir í hálfleik, 13-16, settu heimamenn í Akureyri í fluggírinn í síðari hálfleik og um miðbik hálfleiksins höfðu þeir náð að jafna leikinn í 24-24. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi en á endanum voru það heimamenn, studdir áfram af fjölmörgum áhorfendum, sem höfðu betur. Leikurinn var mjög góð skemmtun, bauð upp á fína tilburði í vörn og sókn hjá báðum liðum. Þáttur markvarðarins Hreiðars Guðmundssonar vóg þungt fyrir Akureyri en hann varði stærstan hluta 13 skota sinna í síðari hálfleiknum. Hlynur Morthens var alls ekki síðri í hinu markinu, með alls 20 skot varin í leiknum. Atkvæðamestur heimamanna var Magnús Stefánsson með sjö mörk en Goran Gucis, Andri Snær Stefánsson og Ásbjörn Friðriksson skoruðu allir sex mörk. Hjá Fylki var Vladimir Duric langmarkahæstur með 11 mörk. Valsmenn sitja einir á toppi DHL-deildarinnar með 8 stig en HK er í 2. sæti með 7 stig.
Íslenski handboltinn Innlendar Íþróttir Olís-deild karla Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira