Viðskipti innlent

Minna tap hjá Atlantic Petroleum

Atlantic Petroleum tapaði 257,8 milljónum danskra króna eða um 3 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er talsvert betri afkoma en fyrir ári þegar félagið tapaði 2,5 milljörðum danskra króna eða 30 milljörðum króna.

Rekstrartap Atlantic Petroleum nam 2,6 milljörðum danskra króna á tímabilinu eða 30,2 milljörðum íslenskra króna samanborið við tap upp á 1,8 milljónir danskra króna eða 21,6 milljónir íslenskra króna í fyrra.

Atlantic Petroleum, sem skráð er í Kauphöll Íslands og Kauphöllina í Kaupmannahöfn í Danmörku, stundar tilraunarboranir við Færeyjar og Bretland.

<a href="http://news.icex.is/newsservice/MMIcexNSWeb.dll/newspagepf?language=is&pagetype=&primarylanguagecode=is&newsnumber=36047">Tilkynning Atlantic Petroleum</a> 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×