Átthagafræði samkvæmt bók KK 2. janúar 2007 10:00 KK spilar og syngur
Önnur sýning Söguloftsins í Landnámssetrinu í Borgarnesi leit dagsins ljós á föstudag. Önnur sýning var á laugardagskvöld: Einar Kárason og KK flytja þar Menn eru svona sem byggir að miklu leyti á minningum KK sem Einar skráði eftir honum sjálfum og fleirum og gaf út á bók 2002 og svo söngvum KK, bæði frumsömdum og sóttum í sjóði söngvaskáldsins. Þetta er dagskrá sem teygir sig í tvo klukkutíma, þægileg áheyrnar og skemmtileg kvöldstund sem líður hratt. Söguloftið býr til eitthvað sem kalla má baðstofutilfinningu: á vörulofti er raðað tuttugu stólum undir súð í tveimur andstæðum röðum. Milli þeirra er langur gangur og stilla listamennirnir sér á andstæða enda hans, Einar gengur mikið inn gólfið og út meðan hann segir frá, nokkuð kvikur og var á köflum óöruggur, tafsaði og mismælti sig. Hvergi var honum gefið skjól í röðum áhorfenda hvorki til enda eða í miðju, afdrep þar sem hann gat sett sig niður, slakað á, talað úr annarri hlið yfir í hina, sem ég trúi að mætti reyna. Það gæfi frásagnarmanninum beint ávarp á helming salarins og hann talaði þá í skjóli hins. Það mætti ætla að svona einfalt form byði ekki upp á marga möguleika í flutningi. Það er rangt. Munnlegur flutningur skreyttur smá spili eða andsvari getur verið býsna snúið mál – aðeins stigbygging munnlegrar frásagnar er list sem ekki öllum er gefin. Getur hver fundið það á sjálfum sér. Nú er Einar í sinn hóp fínn sögumaður, hann er undraskjótur að bregða upp andrúmslofti og aðstæðum, skissa upp helstu persónur. Frásögn hans af vesturför Kristjáns Einarssonar lífslistamanns, völundar og verkfræðings með trygga eiginkonu og stóran barnahóp, ber í sér marga ósagða kafla. Vitaskuld dvelur hann mest við Kristján sjálfan, teiknar hann upp hratt, en það eru útlínur, í persónumyndinni verða flákar huldir; það vakna raunar fleiri spurningar en svarað er. Einar Kárason segir sögur af kk og öllu hans fólki. Einar snýr sig alltaf haglega áfram á leiðinni, spinnur upp ný svæði, nýtt söguumhverfi. Hann berst ekki mikið á í frásögninni, höndlar stór örlög með úrdrætti, kaldhömruðum knöppum lýsingum. Áhorfandanum verður oft hugsað til mannsins sem á móti situr, KK sjálfs, sem öll frásögnin snýst um: hvernig líður honum í þessari flökun og snyrtingu á færibandi frásagnarinnar? Inn skellir svo KK hugljúfum lögum sínum, riffinu sínu í margbreytilegum blúsuðum tilbrigðum. Hann stendur einhvern veginn nær manni á sinn hógværa hugljúfa máta: yfirlýsing í sjálfum sér – svona slapp ég úr þessu. Hvort manni er boðin fægð mynd er áheyrandinn ekki viss um. Jafnvel slarkár niðri í Evrópu meðan Þórunn kona hans sat heima í Svíþjóð verða sakleysislegar sögur þótt djús og hösl séu þá daglegt brauð í lífi hans. Báðum þeim feðgum voru gefnar konur sem umbáru brokkgenga ferð þeirra um táradalinn – þær verða samt ekki lifandi persónur í frásögninni heldur einhverjar huldur handan við líf lukkuriddarans. En það er svona – frásagnarmenn velja sér hetjur – þess eru jú dæmi af löngum ævisögum karlmanna að konur þeirra fái hálfa línu, þótt þær hafi lagt til meira en hálft konungsríkið og höllina með, haldið veislu langa ævi og vaskað allt upp. Umfram allt verður þetta þægileg kvöldstund sem á eftir að slípast til, fágast á fundum áheyrenda og sögumannanna. Á laugardagskvöldið skemmtu gestir sér konunglega, kímnin hitti misjafnlega en þar tókust menn á loft í kostulegum lýsingum á liðnum tíma þar sem Einar dró okkur frá föstum hugmyndum, kallaði beinlínis á endurskoðun í ljósi sögunnar. Blíða stillu, límið í söguna, setti svo KK inn svo hún hélst saman. Stundum tók Einar undir í söngnum en því var okkur ekki boðið að syngja með? Söguloftið er með markvissum hætti að vinna með einfaldasta dramatíska formið: söguna. Páll Baldvin Baldvinsson
Mest lesið Stjörnulífið: Frumsýnir kærastann á Tenerife Lífið Hjartaknúsarinn tileinkaði íslenskri fyrirsætu rómantískan slagara Lífið Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus stinga saman nefjum Lífið Í sérsaumuðum kjól úr ónothæfum peysum Tíska og hönnun „Gæti skrifað bókaseríu um vandræðileg stefnumót“ Makamál Hafa aldrei rifist Lífið Heillandi hús við Laugalæk úr smiðju Kjartans Sveinssonar Lífið „Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið Ótrúleg heimkoma Búbba sem fauk alla leið í Kópavog Lífið Viltu vinna skemmtilegar gjafir fyrir sumardaginn fyrsta? Lífið samstarf Fleiri fréttir Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Bjarni Ben lét sig ekki vanta á Fjallabak „Ég verð dauður áður en kvikmyndahúsin loka“ Lovísa Ósk nýr listdansstjóri Íslenska dansflokksins Vonar að tæknin taki aldrei yfir innsæi og ástríðu Tekur við sem verkefnastjóri dagskrárgerðar í Hörpu Íslensku myndlistarverðlaunin: Pétur, Helena og Erró heiðruð „List er okkar eina von“ Skálað fyrir skíthræddri Unni Sjóðheitir listamenn mynda sterka heild Rif eftir Önnu Júlíu sigraði og verður á Héðinsreit Gerir upp tólf ára samband við barnsmóður sína með sýningu og bók Samtal við þann fyrsta til að taka ljósmyndir á Íslandi Tilnefningar til íslensku myndlistarverðlaunanna Birgitta Björg, Ingunn og Rán Flygenring fengu Fjöruverðlaun Tjörnin trónir á toppnum Borgarstjórar og forsetar á ólgandi listasýningu Hendur sem káfa, snerta og breyta „Á fyrsta uppistandi er maður að skíta á sig“ Sjá meira
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið
„Ég er mamma hans og á sama tíma er ég líka lífvörðurinn hans, túlkurinn hans og talsmaðurinn hans“ Lífið