Segir eiginkonuna hafa lamið sig í mörg ár 12. janúar 2007 00:01 Jason Kidd hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni, Joumana, eftir tíu ára hjónaband sem var enginn dans á rósum að því er hann segir. NordicPhotos/GettyImages
Ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar, Jason Kidd, leikmaður New Jersey Nets, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til síðustu tíu ára. Málið hefur vakið mikla athygli vestra enda sakar Kidd eiginkonu sína um áralanga misnotkun, líkamlega sem andlega. Kidd sótti um skilnað degi eftir að hann fór fram á tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna. Í skilnaðarumsókninni er nákvæm lýsing á hegðun eiginkonu hans, Joumana Kidd, og henni lýst sem sjúklega afbrýðisamri. Í umsókninni kemur fram að Joumana hafi notað átta ára son þeirra til að laumast inn í klefa Nets og stela síma Jasons. Joumana fór síðan í gegnum símaskrána og sms eiginmannsins og eftir það skildi hún soninn eftir og fékk sér sæti inni í sal þar sem Jason var að keppa með Nets í NBA-deildinni. Þaðan jós hún fúkyrðum yfir eiginmann sinn meðan á leik stóð. Jason heldur því einnig fram að hún hafi kýlt, sparkað og fleygt heimilismunum í sig eftir því sem hún versnaði með árunum. Jason heldur því einnig fram að hún hafi falið staðsetningarbúnað í bíl hans og tölvu. Þau hjónin eiga þrjú börn, átta ára son og fjögurra ára tvíbura. - hbg
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira