Flugfrumkvöðull deyr 31. janúar 2007 00:01 Á þessari ljósmynd sem tekin var 17. desember árið 1903 sést þegar þeir Wright-bræður afrekuðu að fljúga flugvél sinni 39 metra. Orville Wright sat í flugmannssætinu en bróðir hans Wilbur hljóp með henni. MYND/AFP
Í gær voru liðin 59 ár frá andláti Orvilles Wright, yngri bróður Wilburs Wright, en saman eiga þeir heiðurinn að því að hafa komið fyrstu vélknúnu flugvélinni á loft í jólamánuði ársins 1903. Orville, sem sat undir stýri vélarinnar, fæddist 19. ágúst árið 1871 og var eitt sjö barna foreldra sinna. Börnin komust flest á legg en tvíburasystkini hans, sem fæddust ári á undan Orville, létust skömmu eftir fæðingu. Að því er Orville sagði sjálfur frá í ævisögu sinni voru þeir bræður uppátækjasamir í æsku og hvöttu foreldrar þeirra bræðra þá með ráðum og dáð. Fjölskyldufaðirinn var biskup trúardeildar sinnar í Bandaríkjunum og var hann því oft á faraldsfæti. Eftir að heim var komið að lokinni einni slíkri ferð árið 1878 gaf hann yngstu sonum sínum tveimur, þeim Wilbur og Orville, leikfangaþyrlu. Varla var hægt að tala um þyrlu eins og þær þekkjast í dag enda var hún gerð úr pappír, bambus og korki. Þá var tvinni notaður til að trekkja „vél“ þyrlunnar upp. Bræðurnir fengu gríðarlega mikinn áhuga á leikfanginu og léku sér í flugleikjum með hana þar til hún eyðilagðist í hamaganginum. Þeir bjuggu til sína eigin þyrlu eftir þetta og og bentu reyndar á það í viðtölum á efri árum að þessi gjöf föður þeirra hefði kveikt áhuga þeirra á flugmálum. En litlu munaði að ekkert hefði orðið úr tilraunastarfsemi bræðranna við að koma flugvél í loftið. Dag einn fékk Wilbur ísknattleikskylfu í andlitið og slasaðist nokkuð. Ekki eru til heimildir fyrir því hvort það hafi verið árið 1885 eða ári síðar en atburðurinn hafði mikil áhrif á drenginn, sem þá var á nítjánda ári. Wilbur varð einrænn eftir þetta, dró umsókn sína um nám í Yale til baka og lokaði sig af innan veggja heimilisins. Orville hugðist sömuleiðis sjálfur hefja bóknám. Hann entist hins vegar ekki til þess og ákvað að setja á laggirnar prentsmiðju árið 1889, þá 18 ára að aldri. Prentvélina smíðaði hann sjálfur ásamt bróður sínum, Wilbur. Þetta varð til þess að Wilbur gekk til liðs við yngri bróður sinn og tók við stjórn vikurits, sem þeir gáfu út. Þótt bræðurnir séu iðulega nefndir í sama vetfangi sem frumkvöðlar í flugsögunni þá mun það hafa verið Wilbur sem átti frumkvæðið að því að skrifa Smithsonian-stofnuninnni og óska eftir upplýsingum um flugvélar og þróun þeirra. Bræðurnir unnu hins vegar að þróun flugvélar sinnar í sameiningu ásamt starfsmanni á reiðhjólaverkstæði, sem þeir bræður ráku. Bræðranna beið vandasamt verk enda hafði fjöldi manna látið lífið við tilraunir til þess að hefja sig til flugs. Þeir gerðu nokkrar atlögur að flugi frá aldamótaárinu 1900 og smíðuðu nokkrar missterkar flugvélar áður en þeim tókst loksins að fljúga vél sinni rúma 39 metra undir lok árs 1903. Flugið tók 12 sekúndur. Galdurinn fólst í vél úr áli sem knúði vélina áfram og bættu stýrikerfi vélarinnar. Tilraunaflugið var framkvæmt með leynd því bræðurnir óttuðust að aðrir myndu stela hugmynd þeirra. Næstu árin á eftir unnu bræðurnir að því hörðum höndum að fullkomna flugvélina og vinna að því að fá einkaleyfi fyrir hana. Wilbur og Orville áttu fleira sameiginlegt en brennandi áhuga á flugi. Hvorugur þeirra kvæntist og voru þeir báðir barnlausir. Þá höfðu þeir gert drög að húsi sem þeir ætluðu að búa saman í í Oakwood í Ohio. Wilbur entist hins vegar ekki aldur því hann lést árið 1912, einungis 45 ára að aldri. Orville lést svo árið 1948. Hann varð 76 ára.
Héðan og þaðan Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira