Fyrsta Tarsan-myndin í bíó 14. febrúar 2007 00:01 Þótt hér geti að líta sundkappann Johnny Weissmuller í hlutverki Tarsans þá var hann annar leikarinn til að taka við hlutverkinu. Fyrsta kvikmyndin um Tarsan var frumsýnd árið 1918. MYND/AFP
Fyrsta kvikmyndin um ævintýri hvíta frumskógarkonungsins Tarsans var frumsýnd á þessum degi árið 1918. Leikstjóri myndarinnar var Bandaríkjamaðurinn Scott Sidney en með aðalhlutverk Tarsans fór Elmo nokkur Lincoln. Þessi fyrsta kvikmynd um ævintýri konungs frumskógarins var byggð á fyrstu bókinni um Tarsan eftir bandaríska rithöfundinn, Edgar Rice Burroughs, sem kom út árið 1913. Myndin þykir fylgja bókinni einkar vel, en þar er greint frá því þegar foreldrar hans, Greystoke lávarður og frú, eru skilin eftir á afrískri strönd eftir uppreisn um borð í skipi þeirra, andláti þeirra og bernsku Tarsans fyrstu árin í faðmi apynjunnar Kölu sem tók hann að sér. Burroughs er þekktastur fyrir ævintýrabækur sínar um frumskógarmanninn. Því fer hins vegar fjarri að þetta hafi verið einu bækur rithöfundarins því hann á það sameiginlegt með norska ofurrithöfundinum Margit Sandemo að hafa haft nokkra bókaflokka í smíðum á sama tíma. Samtals komu út 24 bækur um ævintýri aðalsmannsins í frumskógum Afríku, tólf eftir Burroughs sjálfan en afgangurinn eftir óþekkta höfunda sem skrifuðu í skugga höfundarheitis hans allt fram til ársins 1964. Auk þeirra skrifaði hann eina til viðbótar ætlaða börnum. Sú fjallaði um Tarsan og tvíburasyni hans. Þessu til viðbótar skrifaði Burroughs þrettán bækur um baráttu manna og Marsbúa auk sagnfræðilegra skáldsagna, svo eitthvað sé nefnt. En aftur að fyrstu kvikmyndinni um Tarsan. Leikstjóri myndarinnar var Scott Sidney. Sidney þessi hóf feril sinn á leikarasviðinu árið 1913 en færði sig fljótlega aftur fyrir linsuna og hóf að leikstýra eigin kvikmyndum. Elmo Lincoln, sem fór með hlutverk Tarsans, varð þekktur um hinn vestræna heim fyrir myndarlegan brjóstkassa sem hann þandi í svarthvítum skóginum. Það er hins vegar langt því frá að frumskógaröskur hans hafi borist víða, því myndin var að sjálfsögðu þögul líkt og allar kvikmyndir þess tíma. Hvort tilviljun ráði hér ferðinni eður ei þá fæddist Elmo í þessum mánuði, nánar tiltekið hinn 6. febrúar árið 1889. Leikferilinn hóf hann sama ár og leikstjóri Tarsanmyndarinnar, eða árið 1913. Á meðal þekktustu mynda hans eru stórmyndirnar Birth of a Nation eftir D. W. Griffith, sem olli vatnaskilum í bandarískri kvikmyndagerð, og Intolerance, sem var næsta mynd meistararans og sýnd ári síðar. Elmo lék alls í fjórum öðrum myndum um frumskógarkonunginn. Hann var í aðalhlutverkinu hins vegar í aðeins þremur fyrstu myndunum en vék eftir það fyrir ekki ómerkari manni en sundkappanum og Ólympíuverðlaunahafanum Johnny Weissmuller, sem þekktastur er fyrir hlutverk sitt sem Tarsan. Hann lék ýmis aukahlutverk í nýrri myndum um kappann, síðast í myndinni Tarzan‘s Magic Fountain, sem sýnd var árið 1946. Svo lítil voru hlutverkin á tíðum að vart þótti taka því að tilgreina Elmo sérstaklega á meðal leikara. Hann lést í Los Angeles í júnímánuði árið 1952, einungis 63 ára að aldri.
Héðan og þaðan Mest lesið Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira