Ætlum okkur góða hluti í Kanada 2. maí 2007 00:01 Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Halldór J. Kristjánsson bankastjóri, Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri einkabankasviðs, Sandra Sigurdson, starfsmaður skrifstofunnar, Rene Botzenhardt hjá Landsbankanum í Halifax, Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs, Elín S. Sigfúsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Landsbankans, og Þorvaldur Þorsteinsson, sérfræðingur á einkabankasviði.
Landsbankinn mun í fyrstu kynna einkabankaþjónustu þar sem bankinn ávaxtar eignir viðskiptavina, meðal annars með aðgangi að verðbréfamörkuðum á Íslandi og þrettán öðrum Evrópumörkuðum. Fyrir rekur bankinn skrifstofu í Halifax á austurströnd Kanada sem annast fyrirtækjaráðgjöf og hefur milligöngu um lánveitingar til fyrirtækja. „Við höfum lengi verið á leið hingað,“ segir Björgólfur. „Í þessari stækkun á Landsbankanum höfum við alltaf horft til vesturs. Við erum þegar með skrifstofu í New York en hér ætlum við að byggja okkur upp til áframhaldandi framrásar vestanhafs.“ Björgólfur segir Landsbankann kjósa að hasla sér völl í Kanada frekar en í Bandaríkjunum því viðskiptaumhverfið í Kanada sé þjálla og persónulegra en það bandaríska og henti Landsbankanum betur. „Regluverkið er mun stífara í Bandaríkjunum og ómannlegra. Við finnum það á því hvernig okkur er tekið og okkar mál meðhöndluð. Kanada er hins vegar í mikilli sókn og í efnahagslegu tilliti gengur óskaplega vel hér. Hér er mikið af litlum og meðalstórum fyrirtækjum, sem er einmitt sá markaður sem við viljum helst sinna.“ Til eru stærri borgir í Kanada en Winnipeg, sem telur rösklega 630 þúsund íbúa, og víða er efnahagslegur uppgangur meiri, til dæmis í Calgary þar sem ástandið er ekki ósvipað og á Íslandi. Spurður hvers vegna bankinn hafi kosið að koma sér fyrir í Winnipeg segir Björgólfur að hún sé mikilvægari borg en margir haldi. „Ég held að margir heima hafi ekki rétta hugmynd um Winnipeg og tengi hana fyrst og fremst við Vestur-Íslendinga og þjóðrækni. Hið rétta er að hún er borg mikilla athafna; hér er fjölbreytt atvinnu- og fjármálalíf og hún er af stærð sem hentar okkur vel.“ Hin sögulegu tengsl milli Íslands og Winnipeg spilla ekki fyrir, um áttatíu þúsund manns í borginni og nágrenni hennar eru af íslensku bergi brotnir. „Það er ótrúlegt net af fólki af íslenskum ættum í stjórnunarstöðum og viðskiptum hér sem hafa tekið okkur afskaplega vel og jafnvel hvatt okkur til að koma. Þessir aðilar hafa fylgst betur með íslensku efnahagslífi en við gerum okkur grein fyrir og við njótum mikils velvilja, upplýsts velvilja. Þær spurningar sem við fáum sýna að menn hafa unnið heimavinnuna sína vel.“ Hann bætir við að tengsl Íslendinga við Vestur-Íslendinga hafi ávallt verið góð en efnahagslegar ástæður komið í veg fyrir að þau hafi blómstrað. „En ég geri mér vonir um að með opnun skrifstofunnar aukist viðskipti og þar með eflist jafnframt lifandi mennta- og menningartengsl.“ Þá segir Björgólfur Kanadamenn almennt vera opnari fyrir nýjum möguleikum og treysta mönnum betur en almennt gerist. „Móttökurnar hér hafa verið ólíkt betri en til dæmis í Danmörku og Noregi. Kanadamenn hugsa og framkvæma eins og við Íslendingar; þeir eru opnir og heiðarlegir, sem skiptir öllu máli. Þetta er öðruvísi en á stærri mörkuðum þar sem er meiri hraði. Hvarvetna er okkur tekið á jafningjagrundvelli.“ Hann segir líkindi milli þjóðanna og báðar hafi þær verið í skugga sér voldugri nágranna. „Maður heyrir það í samtölum við heimamenn; þegar við tölum um Evrópu segja þeir að þannig upplifi þeir Bandaríkin.“ Björgólfur segir að næstu skref vestanhafs séu að kortleggja markaðinn, en aðalatriðið sé að fara sér ekki óðslega. „Við vitum hvert við erum að fara en förum rólega yfir. Við erum að hugsa um marga staði í augnablikinu og ég held að vöxtur bankans verði töluverður. Við ætlum okkur góða hluti í Kanada.“
Héðan og þaðan Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Viðskipti innlent Bíllinn þremur milljónum dýrari Viðskipti innlent Lindex lokað á Íslandi Viðskipti innlent Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent Nýtt gjald á bíómiða í vefsölu Neytendur Boðar aðgerðir til að koma reglu á „gjaldskyldufrumskóg“ Neytendur Fleiri fréttir Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Síðasta Heilsuhúsinu brátt lokað Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Engin innköllun á NAN þurrmjólk á Íslandi Freyr lætur af störfum sem forstjóri Kapps Ingvar Freyr nýr hagfræðingur BHM Sonur tekur við af föður hjá Klöppum Útgáfu ViðskiptaMogga hætt og deildum fækkað Fjögurra milljarða gjaldið gæti hækkað verði ekkert úr áframhaldandi undanþágu Um fimm prósenta hækkun fasteignaverðs spáð á árinu Til í að taka á móti FDA hvenær sem er Grímur hættir hjá Bláa lóninu og Sigríður Margrét tekur við Róbert hættir sem forstjóri Alvotech 54 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Icelandair setur nokkur met Lögmenn frá Juris til LEX Visa velur íslenskt félag í þróunarverkefni Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Sjá meira