Líkur á nýju tilboði í vikunni 13. júní 2007 03:00 Margt bendir til þess að hærra yfirtökutilboð verði lagt fram í Actavis fyrir vikulok.
Líklegt er að hluthöfum í Actavis muni berast nýtt yfirtökutilboð frá Novator fyrir vikulok. Formlegt tilboð Novators tók gildi 5. júní og stendur opið til 3. júlí. Í skilmálum þess kemur fram að ef breyta eigi tilboðinu innan tilboðsfrestsins verði að gera það á fyrstu tveimur vikum hans. Ella bætist tvær vikur við heildarfrestinn. Talið er að Novator vilji síður lengja ferlið um tvær vikur. Lagt verði kapp á að ákvarða næstu skref sem fyrst. Á föstudaginn gaf stjórn Actavis út álit þar sem hún réði hluthöfum frá því að samþykkja tilboð Novators á þeim grundvelli að verðið væri of lágt. Byggði hún álit sitt á ráðgjöf alþjóðlega fjárfestingabankans JP Morgan. Á milli Novators og bankans standa nú yfir viðræður um forsendur þeirrar ráðgjafar. Gengi bréfa Actavis hefur hækkað um rúm tólf prósent frá því fréttir af yfirtökuáhuga bárust. Mikil viðskipti með bréfin gefa til kynna að margir fjárfestar búist við að hærra tilboð eigi eftir að berast frá Björgólfi. Tilboð Novators hljóðaði upp á 0,98 evrur á hlut, sem nemur um 84 krónum. Sérfræðingar telja líklegt að nýtt tilboð verði á bilinu níutíu til 95 krónur á hlut. Líkurnar á að þriðji aðili komi inn í ferlið og geri hærra tilboð í félagið eru taldar hverfandi.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira