Gnúpur þriðji stærsti hluthafinn í Kaupþingi 22. júní 2007 01:15 Þórður Már Jóhannesson. Gnúpur fór yfir fimm prósent í kaupþingi. Mynd/Anton
Fjárfestingafélagið Gnúpur, félag þeirra Kristins Björnssonar, Magnúsar Kristinssonar og Þórðar Más Jóhannessonar, fór yfir fimm prósenta hlut í Kaupþingi í gær. Þetta gerist skömmu eftir að félagið jók hlut sinn í FL Group upp fyrir tuttugu prósent. Miðað við síðasta gengi Kaupþings, 1.108 krónur á hlut, er 5,19 prósenta hlutur metinn á rúma 42,5 milljarða króna. „Við teljum að Kaupþing verði í lykilstöðu í frekari útrás og uppbyggingu íslenskra fjármálafyrirtækja erlendis. Þeir hafa sterkt stjórnendateymi sem hefur vakið víða athygli. Í því viljum við fjárfesta," segir Þórður Már Jóhannesson, forstjóri Gnúps. Ekki hefur komið til tals að fjárfesta meira í Kaupþingi að sögn Þórðar Más. Þessi kaup gera Gnúp að þriðja stærsta hluthafanum í Kaupþingi á eftir Existu (22,8%) og óstofnuðu hollensku dótturfélagi Kjalars hf. (9,9%). Gnúpverjar hefur verið að auka hlut sinn í Kaupþingi á árinu, einkum það sem af er júní. Kaupin í gær námu 3.663 milljónum króna, um 0,45 prósent af heildarhlutafé Kaupþings. Um áramótin átti félagið um 2,2 prósent í bankanum. Gnúpur er jafnframt stærsti hluthafinn í FL Group með rúman tuttugu prósenta hlut. Samanlagt eru eignarhlutir félagsins í FL og Kaupþingi metnir á 90 milljarða króna. Gnúpur á einnig um 1.1 prósent í Straumi-Burðarási í síðustu viku.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira