Skoðun

Allir geta sigrað

Þann 18. ágúst verður hlaupið til góðs og landsmenn hafa möguleika á að slá tvær flugur í einu höggi- fá betri líðan með hreyfingu og samtímis rétta hjálparhönd til þeirra sem minna mega sín. Hjálparstarf kirkjunnar fagnar þessu göfuga framtaki Glitnis að heita á hlaupara og styrkja þannig starf frjálsra félagssamtaka á Íslandi.

Eitt af stóru verkefnum Hjálparstarfs kirkjunnar er að veita fólki aðgang að hreinu vatni. Vissir þú að 1.1 miljarður manna í heiminum hefur ekki aðgang að hreinu vatni? Maraþonhlaup og vatn eiga sérlega vel saman, varla er til sá hlaupari sem gæti hugsað sér að fara hringinn án þess að drekka vel af hreinu og tæru vatni. Það er okkar draumur að það verði mögulegt fyrir allt mannkynið.



Að hafa ekki aðgang af hreinu vatni þýðir meðal annars að erfitt er að ala upp börn. Endurtekinn niðurgangur á unga aldri veldur vítamín- og næringarskorti. Heftur líkamsvöxtur helst í hendur við minni andlega getu. Börn eiga verr með að læra og fullorðnir að vinna fyrir sér. Í heiminum öllum deyja fimm sinnum fleiri börn af niðurgangi vegna óhreins vatns en úr alnæmi. Hjá Hjálparstarfi kirkjunnar höfum við haldið því fram að vatnið breytir öllu, því fátt er eins dýrmætt og nauðsynlegt eins og vatn, án því geta hvorki menn né plöntur lifað.



Hjálparstarf kirkjunnar er lítil mannúðarstofnun og ekki getum við í fljótu bragði ráðið við vatnsskort 1.1 miljarða manna. En með stuðningi þínum og með því að við Íslendingar látum okkur mál annarra varða þá er hægt að hjálpa mörgum. Við viljum hvetja alla landsmenn til að taka þátt í hlaupinu þann 18. ágúst og þannig láta gott af sér leiða.Við vonum að þú gefir þinn stuðning til Hjálparstarfs kirkjunnar, því vatnið breytir öllu og saman getum við gefið öðrum möguleika á að kynnast því.

Við hlökkum til að sjá ykkur, við munum vera til staðar, bjóða ykkur upp á hreint vatn og hvetja ykkur áfram!



Höfundur er verkefnastjóri hjá Hjálparstarfi kirkjunnar.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×