Þróun sem virkar Stefán Jón Hafstein skrifar 14. desember 2007 00:01 Besti fyrrverandi forseti Bandaríkjanna er Jimmy Carter. Hann er á níræðisaldri en ötull baráttumaður fyrir bættum hag fátækra í Afríku. Fyrir meira en 20 árum tók hann til við að útrýma sjúkdómi sem hlýst af lirfu orms sem tekur sér bólfestu í holdi manna. Lirfan þroskast inni í líkama fólks sem drekkur eða baðar sig í óhollu vatni. Ormurinn brýst að lokum út fullvaxinn og stendur eins og spaghettilengja úr fólki sem engist af kvölum. Áður þjáðust 3 milljónir manna árlega af þessari bölvun, nú eru árleg tilfelli 12.000. Með örlítið meiri stuðningi hefði Carter og fjölmörgum öðrum sem vinna gegn þessum ormi tekist að útrýma honum með öllu. Þetta dæmi og mörg önnur sýna að talið um að þróunaraðstoð þýði ekki neitt á sér aðra hlið: Marktækan árangur sem bjargað hefur lífi milljóna manna eða bætt umtalsvert. Almennar bólusetningar á börnum hafa á liðnum áratugum náð miklu víðar en áður og tugir milljóna barna eru nú á lífi, en hefðu ekki verið það án átaks sem ráðist var í. Bólusetning við helstu sjúkdómum sem kostar innan við 2 þúsund krónur á barn. Auðsköpun líkaÍbúar ríku landanna gleyma því stundum sem þeir hafa fyrir augunum: Flókið og gamalreynt kerfi laga og réttar, fjár- og stjórnsýslu, sem gerir þeim kleift að stunda viðskipti, fá lán og færa fé milli staða eftir öruggum samskiptanetum. Það tók nokkrar aldir að þróa þetta kerfi. Fátæku fólki stendur ekki til boða sú úrvalsþjónusta ríkisvaldsins, stjórnsýslu og banka sem við höfum. Hernando De Soto benti á hve mikilvægt væri fyrir öflugt markaðskerfi að hafa þróaða umgjörð. Hann tók upp baráttu fyrir því að „hið óformlega hagkerfi“ þar sem lang flestir jarðarbúa stunda vinnu og viðskipti, yrði fært undir sams konar regluverk og við njótum. Annars væri ekki hægt að innleysa og nýta þann „leynda auð“ sem fátækt fór býr víða yfir. Annar hugsuður, nóbelsverðlaunahafinn Muhammad Yunus, tók upp smálánakerfi fyrir fátækt fólk svo það fengi möguleika á að þróa viðskipti. Hugmyndin hjá báðum er sú sama: Gera fátæku fólki kleift að vinna fyrir sér eins og við hin gerum og skapa auð. Nýjar lausnir í velferðÞað er viðurkennt að víða er fólk svo fátækt að það kemst ekki af án aðstoðar. Í Mexíkó hófst velferðarþjónusta með því sniði að borga fólki framfærslustyrk gegn því, til dæmis, að tryggja að börnin fari í skóla og fái reglulega bólusetningar. „Oportunidades“ hefur breiðst víða út, og aðferðin jafnvel tekin upp í fátækrahverfum New York. Fólki er breytt úr „velferðarþegum“ í samábyrga borgara, með samningi sem felur í sér ávinning einstaklings og samfélags. Aðferð sem innleidd var í Tansaníu byggir á sömu hugmynd. Þeir sem þurftu bráðnauðsnylega að taka lyf vegna smitsjúkdóma eins og berkla fengu „lyfjavin“ til að fylgjast með; gengust þannig undir félagslegan þrýsting til að standa sig. Það kostar rúmlega 700 krónur að lækna berkla. Í Bangladesh fá fátækar fjölskyldur mat ef börnin mæta reglulega í skóla. Samskiptanet og staðbundnar lausnirSmátt er gott, það sem bætir lífsskilyrði fólksins á vettvangi og snertir beint veruleika þess. Illa gengur að nýta sólarorkuna í sólríkustu löndum heims, en samt tók sig til auðmaður og þróaði sólarknúið vasaljós. Á loftslagsráðstefnuna í Balí kom maður akandi frá Sviss á sólarknúnum bíl. Hægt er að nýta orku sólar mun betur en gert er. Farsímar skapa gríðarlega möguleika í Afríku; nú þarf ekki að leggja dýrar landlínur og fátækt fólk getur keypt símtalainneign fyrir smáaura og opnað sér leið að mörkuðum á svipstundu. 100 dollara fartölvan er langt komin og verður einstakt tækifæri fyrir Afríku í menntunarmálum. Nú hafa menn séð að hin risavöxnu þróunarverkefni sem áður var lögð áhersla á, eru ekki jafn góð og ætlað var. Hagvöxtur mælir ekki jöfn tækifæri. Margir litlir sveitavegir sem tengja dreifðar byggðir smábænda eru miklu arðsamari en hraðbrautir. Hraðbrautir eru fyrir fáa; í löndum þar sem stór hluti þjóða býr við sjálfsþurftabúskap skiptir meiru að greiða samgöngur og glæða viðskipti þar sem fjöldinn er. Malaví neitaði að fara að ráðum Alþjóðabankans sem vildi hætta niðurgreiðslum á áburði til smábænda. Uppskeran í ár er meiri en nokkru sinni fyrr, að hluta vegna þess að farin var leiðin sem bændur þurftu, með niðurgreiddum áburði. Það hefur sjálfsagt farið framhjá mörgum, en Eþíópía tvöfaldaði matvælaframleiðslu sína síðasta áratug. Stóru kerfislausnirnar sem áður áttu að bjarga öllu með pennastriki og pólitískum lausnarorðum duga ekki; það sem dugar er að leysa málin á vettvangi á forsendum fólksins sjálfs. Meira efni um þessi mál er á vef mínum, www.stefanjon.is. Höfundur starfar fyrir Þróunarsamvinnustofnun í Namibíu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Jón Hafstein Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar