Skoðun

Hvort á ég að kenna eftir fyrir­mælum aðal­nám­skrár eða eftir getustigi nemandans?

Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar

Ég er kennari og hef kennt í grunnskólum og sérskólum bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Auk þess er ég sérfræðimenntaður í menntunarfræðum. Ég hef reynslu bæði af því að kenna öflugustu nemendum 10. bekkjar og slökustu nemendum 8. bekkjar. Ég hef einnig reynslu af kennslu einhverfra nemenda á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Munurinn á kennslu í grunnskóla og sérskóla er sá að í grunnskóla á kennarinn að fylgja aðalnámskrá grunnskóla og greinanámskrá viðkomandi námsgreinar. Í sérskóla útbýr kennarinn námskrá fyrir hvern nemanda sinn.

Vetur einn eða tvo kenndi ég slökustu nemendum 8. bekkjar stærðfræði. Við höfðum getuskipt nemendum í áttunda, níunda og tíunda bekk. Í hverjum árgangi voru um það bil eitt hundrað nemendur. Við vorum fimm stærðfræðikennarar á unglingastigi og nemendum var skipt í fimm bekki í hverjum árgangi. Í áttunda bekk kenndi ég slakasta hópnum. Hverjum árgangi skiptum við á þann hátt að við höfðum sterkustu nemendurna í 30 nemenda hópi, hópur tvö var með 25 nemendur, hópur þrjú taldi 20 nemendur, hópur fjögur samanstóð af 15 nemendum og að lokum taldi hópur fimm, sá slakasti, 10 nemendur. Á þennan hátt vonuðumst við til að þjónusta alla nemendur sem best. Vissulega má deila um uppskiptingu nemenda eftir getustigi, en við stærðfræðikennararnir fengum stjórnendur skólans með okkur í lið við uppskiptinguna. Engar kvartanir bárust vegna skiptingarinnar frá forráðamönnum, þar sem flestir þeirra töldu að uppskiptingin þjónaði nemendum mun betur.

Til þess að þjónusta hópinn minn í áttunda bekk sem best vaknaði sú spurning hvort ég ætti að fara eftir námskrám grunnskóla (aðalnámskrá og greinanámskrá fyrir stærðfræði) eða hvort ég ætti að hanna einstaklingsbundna námskrá fyrir hvern nemanda. Slökustu nemendur hópsins voru á því getustigi að þeir spegluðu tölustöfum og höfðu litla sem enga þekkingu á reikniaðgerðunum fjórum (samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu).

Á sjö árum í grunnskóla höfðu nemendur ekki getað tileinkað sér undirstöðuaðferðir reikniaðgerðanna fjögurra og sumir þeirra spegluðu nokkra tölustafi. Ég, sem fagstjóri í stærðfræði, fór fram á það við skólastjórnendur að fá að gera einstaklingsbundna námskrá fyrir hvern nemanda minn, en svarið var þvert nei. Kenna skyldi eftir aðalnámskrá grunnskóla og greinanámskrá í stærðfræði. Sem fagstjóri bar ég ábyrgð á öllu stærðfræðinámi við skólann, en þurfti að fara eftir vilja yfirmanna minna.

Nú voru góð ráð dýr. Hvernig gat ég þjónað skjólstæðingum mínum sem best og samtímis tekið mið af getustigi þeirra? Hvernig gat ég kennt áttundabekkingunum mínum námsefni áttunda bekkjar þegar þeir höfðu ekki getu til þess? Í stærðfræðináminu fyrir allan unglingahópinn höfðum við ákveðna vikuskammta sem allir áttu að skila.

Ég tíndi út léttustu dæmin úr námsefninu og bjó til vikuskammt fyrir nemendur. Ég reiknaði öll vikudæmin fyrir þau á töflunni og lét þau skrifa niður útreikningana mína. Á föstudögum fór ég síðan yfir hvort nemendur hefðu skrifað niður öll dæmin eftir mér. Þar á eftir gaf ég þeim stimpilstjörnu í reikningsbækurnar þeirra. Nemendur fóru heim með stjörnumerktan vikuskammtinn, ánægðir með að hafa lokið því sem kennarinn hafði sett þeim fyrir. Eftir stóð kennarinn með skítabragð í munninum. Margoft óskaði ég þess að ef ég hefði aðeins fengið að gera einstaklingsbundna námskrá fyrir nemendur mína, þá hefði ég getað þjónað þeim af meiri virðingu.

Vissulega gera sérkennarar skólans einstaklingsnámskrá fyrir nemendur sína, en aðeins þá nemendur sem eru í sérdeild. Þá eru kennarar skyldugir til að stjörnumerkja einkunnina. Það þýðir að einkunnin er ekki sambærileg við stærðfræðieinkunnir annarra nemenda.

Að ofansögðu má segja að mörg agavandamál í grunnskólum megi leysa með því að gefa nemendum námsefni við hæfi. Bekkjarkennarar í yngri bekkjum grunnskólans þurfa að huga betur að námi nemenda sinna. Enginn nemandi í áttunda bekk ætti að vera á því þroskastigi að spegla tölustafi, hvað þá að hafa litla sem enga grunnþekkingu á reikniaðgerðunum fjórum.

Lausna má leita í fyrsta lagi í kennaranáminu, sem þyrfti að breytast. Lokaár kennaranámsins ætti að vera kandídatsár, eins og hjá læknum, undir ábyrgð þess skóla sem tæki að sér kennaranemann. Kandídatsárið þyrfti að vera launað og kandídatinn hefði stöðu aðstoðarkennara. Einnig þyrfti viðkomandi skóli síðan að tryggja nýútskrifuðum kennara starfi að minnsta kosti fyrsta starfsárið. Í öðru lagi þarf að bæta námsgögn. Hægt er að þýða námsgögn frá hinum Norðurlandaþjóðunum og aðlaga þau íslenskum aðstæðum eða búa til alíslenskt námsefni. Í þriðja lagi þarf að breyta og einfalda aðalnámskrá grunnskóla og greinaskrár. Stytta þarf námskrárnar og gera þær hnitmiðaðri þannig að markmið og aðferðir til að ná þeim komi skýrar fram. Aðalnámskrá grunnskóla minnir á útópíu framtíðarskálds sem hefur fengið frjálsar hendur til að grípa niður hugarsýnir sínar eftir neyslu umferðareyjasveppa.

Byggjum upp menntun barnanna okkar sem hagnýta menntun, sem hægt er að meta út frá fyrirframgefnum viðmiðum og með skýrum aðferðum til að ná því markmiði sem til er ætlast.

Höfundur er kennari á eftirlaunum og sérfræðingur í menntun.




Skoðun

Sjá meira


×