Friðrik Már Baldursson prófessor með fulltingi Kaupþings 20. febrúar 2007 11:44 Friðrik Már Baldursson.
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands hefur ákveðið að dr. Friðrik Már Baldursson, gegni stöðu prófessors með fulltingi Kaupþings. Þetta er í samræmi við sambning sem HÍ og Kaupþing gerðu undir lok síðasta árs um ótímabundna kostun á stöðu prófessors í viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Í tilkynningu segir að í samningnum felist meðal annars að heiti Kaupþings verði tengt við ákveðna stöðu prófessors eða dósents í fjármálum, fjármálahagfræði eða hagfræði. Slíkt fyrirkomulag er mjög algengt hjá háskólum í Bandaríkjunum og víðar. Það er hins vegar nýmæli á hér. Samningurinn markar einnig nokkur tímamót í stuðningi atvinnulífs við Háskóla Íslands því þótt fyrirtæki hafi áður kostað stöður við háskólann hefur slíkur stuðningur ávallt verið tímabundinn. Stuðningur af þessu tagi er mjög mikilvægur fyrir Háskóla Íslands og gefur svigrúm til að efla kennslu og rannsóknir í fjármálum og tengdum greinum. Friðrik Már hefur starfað sem prófessor við viðskipta- og hagfræðideild frá 2003. Hann starfaði áður hjá Hagfræðistofnun Háskóla Íslands, Þjóðhagsstofnun og kenndi við Columbia háskólann í New York. Rannsóknir hans beinast meðal annars að fjármálahagfræði, atvinnuvegahagfræði og hagfræði orkumarkaða. Hann hefur birt fjölda rannsóknarritgerða í innlendum og erlendum ritrýndum fagtímaritum. Þá hefur hann kennt námskeið í fjármálastærðfræði í meistaranámi í fjármálahagfræði sem fór af stað í fyrrahaust í viðskipta- og hagfræðideild. Hann hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum fyrir innlend og erlend fyrirtæki og stjórnvöld, að því er fram kemur í tilkynningunni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira