New Orleans - Utah í beinni í nótt 4. mars 2007 19:52 Chris Paul sækir hér að Deron Williams í leik liðanna í fyrra NordicPhotos/GettyImages
Leikur New Orleans Hornets og Utah Jazz verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt í nótt. Þarna er á ferðinni áhugavert einvígi leikstjórnendanna Chris Paul og Deron Williams, sem eru án efa leikstjórnendur framtíðarinnar í NBA. Utah hefur unnið 39 leiki og tapað 19 og er búið að koma mjög á óvart með góðri spilamennsku í vetur. Liðið getur jafnað sinn besta árangur á útivelli með fjórða sigrinum í röð í kvöld. Það verður hægara sagt en gert gegn New Orleans sem hefur verið á góðri siglingu undanfarið eftir að það endurheimti loksins flesta lykilmenn sína úr meiðslum. New Orleans hefur unnið 28 leiki og tapað 31, en það gefur ekki rétta mynd af styrk liðsins sem stefnir óðfluga á að vinna sér sæti í úrslitakeppninni. Eins og áður sagði verður leikurinn í kvöld áhugaverðastur fyrir þær sakir að þar mætast tveir bestu leikstjórnendur yngri kynslóðarinnar í NBA - þeir Deron Williams hjá Jazz og Chris Paul hjá Hornets. Paul var kjörinn nýliði ársins fyrir frammistöðu sína hjá liðinu á síðustu leiktíð og Deron Williams hefur vaxið gríðarlega á þessu tímabili. Tölfræði þeirra tveggja er nokkuð áþekk. Paul skorar að meðaltali 17,4 stig og gefur 8,6 stoðsendingar en Williams skorar 17,3 stig og gefur 9,3 stoðsendingar.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira