Laug til um doktorsgráðu 7. mars 2007 09:56
Alfræðivefritið Wikipedia er í vandræðum eftir að upp komst að einn helstu höfunda þess hefur löngum logið til um nafn sitt og þóst vera með doktorsgráðu, sem hann er ekki með. Höfundurinn, sem er þekktur undir notendanafninu Essjay hefur löngum sagst vera prófessor í trúarbragðafræðum við einkaháskóla þegar í raun er hann Ryan Jordan, 24 ára háskólanemi frá Kentucky sem hefur notað bækur á borð við „Kaþólska fyrir bjána - Catholicism for Dummies" og byggt greinar sínar á þeim. Honum hefur þegar verið gert að hætta að skrifa á vefritið. Wikipedia er opið alfræðirit sem notendur um allan heim geta sjálfir skrifað inn á. Ryan Jordan skrifaði greinar og hafði réttindi til að breyta greinum annara og eyða spjallþráðum á vefnum Hann sagðist á prófíl-síðu sinni á vefnum hafa kennt guðfræði bæði á grunn- og framhaldsstigi og í viðtali í blaðinu New Yorker síðasta sumar var honum lýst sem reyndum trúarbragðaprófessor. Raunverulegt nafn hans kom ekki upp úr dúrnum fyrr en í síðustu viku þegar sama blað fletti ofan af blekkingunum. Þegar upphaflega greinin var birt vissu hvorki blaðamenn New Yorker né stjórnendur Wikipedia hver Essjay raunverulega var. Jordan hefur nú sagst hafa falið slóð sína og siglt undir fölsku flaggi vegna þess að hann óttaðist að þeir sem hann hafði þurft að banna af vefritinu mundu hefna sín.
Vísindi Mest lesið Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent „Við sækjum ekki um aðild nema vegna þess að við viljum ganga inn“ Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Margmenni fyrir utan höllina og blómvendir uppseldir Innlent Hnífjafnt á laugardag eða meiri munur en allir búast við? Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent „Þetta er ekki alveg óvænt“ Innlent Uppsagnirnar hafi líka áhrif á þá sem eftir verða Innlent Fleiri fréttir Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Eiginmaður Mörtu Noregsprinsessu fékk nýtt nýra Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Carney verður viðstaddur stefnuræðu ESB-forseta Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Fjórtán nýburar dóu í eldsvoða á fæðingardeild Stjórnvöld í Íran hyggjast banna samskipti við erlenda miðla Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ Sjá meira