Isiah Thomas fékk nýjan samning hjá Knicks 13. mars 2007 19:08 Isiah Thomas er hér til hægri á myndinni þegar Knicks gekk frá samningi við Steve Francis í fyrra, en hann er einn þeirra leikmanna sem hafa verið harðlega gagnrýndir í stjórnartíð Thomas NordicPhotos/GettyImages
Isiah Thomas, forseti og þjálfari New York Knicks, skrifaði undir nýjan samning við félagið um helgina. Þessi tíðindi komu nokkuð á óvart í ljósi þess að eigandi félagsins hafði áður sagt að hann ætlaði að taka ákvörðun um framtíð Thomas eftir að keppnistímabilinu lyki. Þó gengi New York hafi alls ekki verið eftir væntingum síðustu ár og launakostnaður verið langt úr hófi fram, hefur Thomas þótt náð ágætum árangri með liðið í vetur eftir að hann tók að sér þjálfun þess. Hann rak Larry Brown úr starfi á síðustu leiktíð og var sú ákvörðun harðlega gagnrýnd. Thomas hefur þó náð þokkalegum árangri með liðið í vetur og er það sem stendur inni í myndinni fyrir úrslitakeppnina í vor. James Dolan, stjórnarformaður félagsins, sagði í haust að Thomas yrði að ná "viðunandi" árangri með liðinu ef hann ætti að eiga von á því að fá framlengingu á samningi sínum. Það virðist honum hafa tekist ef marka má nýjasta útspil stjórnarformannsins, en þó eru körfuboltasérfræðingar vestanhafs alls ekki á einu máli um málið og sumir vilja meina að Thomas sé bæði skelfilegur forseti og þjálfari. Það á þó eftir að koma í ljós í vor hver það verður sem hlær síðast í málinu, en New York hefur þegar unnið fleiri leiki en allt síðasta tímabil undir stjórn Larry Brown.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira