Hæ krakkar, notið eiturlyf 15. mars 2007 19:36 Scot Pollard fór illa að ráði sínu um helgina NordicPhotos/GettyImages
Miðherjinn Scot Pollard hjá Cleveland Cavaliers er ekki vinsælasti maðurinn í Ohio um þessar mundir eftir misheppnað grín hans í beinni útsendingu sjónvarps á sunnudaginn. Pollard er varaskeifa hjá liði Cleveland og sat spariklæddur á varamannabekk liðsins þegar það spilaði við Indiana Pacers á sunnudaginn. Í einu leikhléanna beindi myndatökumaður vél sinni að Pollard, sem horfði í linsuna og sagði upphátt; "Hæ krakkar, notið eiturlyf." Það var reiður heimilisfaðir í Ohio sem vakti fyrst athygli á þessu uppátæki leikmannsins og skömmu síðar var frétt um málið komin í staðarblaðið Plain Dealer. Maðurinn sagðist hafa verið að horfa á leikinn með 11 ára gömlum syni sínum og sagðist ekki hafa trúað eigin eyrum. "Ég átti ekki til orð. Þetta segir maðurinn í beinni útsendingu í sjónvarpinu klukkan sex á sunnudegi þegar fjölskyldan ver tíma sínum saman fyrir framan sjónvarpið. Hvað hefði eiginlega gerst ef þetta hefði verið LeBron James sem sagði þetta? Hefði hann ekki misst alla sína auglýsingasamninga undir eins? Væri fréttin þá ekki á forsíðum allra blaða í landinu?" Pollard sagðist sjálfur sjá eftir orðum sínum og sagði þetta hafa verið lélegan brandara af sinni hálfu. Það er hægt að segja allt mögulegt um þetta - en þetta var bara lélegur brandari," sagði Pollard, sem var tekinn inn á teppi hjá stjórn Cleveland fyrir uppátækið en verður væntanlega ekki sektaður.
NBA Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira