Fótbolti

Ronaldo: Capello er djöfullinn

Ronaldo er ekki annt um fyrrum þjálfara sinn Fabio Capello
Ronaldo er ekki annt um fyrrum þjálfara sinn Fabio Capello NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Ronaldo hjá AC Milan segir að fyrrum þjálfari hans Fabio Capello hjá Real Madrid eigi ekki skilið að vinna Spánarmeistaratitilinn. Hann gekk svo langt að kalla vist sína hjá Real "helvíti" og kallaði Capello sjálfan djöfulinn. "Ég vona að liðinu gangi vel vegna félaga minna þar - en Capello á ekki skilið að vinna neitt," sagði Brasilíumaðurinn í samtali við spænska sjónvarpsstöð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×