Viðskipti innlent

Atorka eignast um 30% í Clyde Process Solutions

Atorka hefur eignast 29,81 prósents hlut í Clyde Process Solutions (CPS) í tengslum við útgáfu á nýju hlutafé hjá félaginu. CPS er skráð á AIM markaðnum í London. Heildarverð kaupanna nemur 9 milljónum punda, jafnvirði 1.180 milljónum króna.

Í tilkynningu frá Atorku kemur fram að félagið hafi átt 9,7 prósent hlutafjár fyrir kaupin.

Atorka fjármagnar kaupin með handbæru fé. Í kjölfar hlutafjáraukningarinnar kaupir CPS allt hlutafé í bandaríska félaginu MAC Equipment Inc.

CPS er leiðandi fyrirtæki á heimsvísu í framleiðslu á háþróuðum lausnum til flutninga og meðhöndlunar á hráefni í framleiðsluferlum, ásamt tengdum mengunarvarnarbúnaði. Félagið er með starfsemi í öllum heimsálfum. Lausnir frá CPS auka hagkvæmni í framleiðsluferlum, bæta nýtingu hráefna og minnka mengum verulega. Eru lausnir fyrirtækisins meðal annars notaðar í efnaiðnaði, gipsframleiðslu, sementsframleiðslu, stálframleiðslu og matvælaiðnaði. Meðal viðskiptavina CPS er General Electric, Exon Mobil, Kraft, Wrigley's og Nestlé. Mikill vöxtur er í starfsemi félagsins og var velta sameinaðs félags á síðasta ári um 7 milljarðar króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×