Artest að gefast upp? 26. mars 2007 20:00 Ron Artest er búinn að fá nóg af körfubolta. MYND/Getty
Ron Artest, hinn skrautlegri framherji Sacramento í NBA-deildinni, er sagður vera að íhuga það alvarlega að leggja skóna á hilluna að loknu núverandi tímabili. Ástæðan, að því er fjölmiðlar í Bandaríkjunum halda fram, er sú að hann vill eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni. Artest vildi ekki tjá sig um málið við ESPN-fréttastofuna ytra og lét aðeins hafa eftir sér að "þetta væri eitthvað sem hann myndi ræða um eftir að úrslitakeppninni lýkur." Artest komst í fréttirnar fyrir skemmstu þegar hann var ákærður fyrir heimilisofbeldi, en leikmaðurinn er þekktur vandræðagemlingur. Skemmst er að minnast þáttöku hans í hópslagsmálunum í leik Indiana og Detroit árið 2005, en fyrir sinn þátt þar fékk Artest 73 leikja bann. Artest er sagður hafa tjáð nokkrum liðsfélögum sínum hjá Sacramento að hann hyggðist hætta körfuknattleiksiðkun eftir tímabilið til að geta ræktað sambandið við eiginkonu sína, sem stendur víst afar höllum fæti.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Fleiri fréttir Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Sjá meira