Viðskipti innlent

Tyrkir bjóða í BTC

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. Mynd/Vilhelm

Tyrkneska farsímafélagið Turkcell hefur lagt fram tilboð í kaup á 65 prósenta hlut í búlgarska símafyrirtækinu Bulgarian Telecommunications Company, BTC. Hluturinn er í eigu Novators, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar. Nokkrir af stærstu fjárfestingasjóðum í heimi eru sagðir hafa áhuga á kaupum á BTC.

Ákveðið var í síðasta mánuði að skoða sölu á BTC og var bandaríski bankinn Lehmann Brothers fenginn til ráðgjafar um hana.

Lokafrestur til að leggja fram tilboð í BTC rennur út í enda næsta mánaðar en gert er ráð fyrir að sölu ljúki í júní, að sögn fréttastofu Reuters.

Turkcell tók sambankalán upp á þrjá milljarða dali, jafnvirði tæplega 200 milljarða íslenskra króna, í síðasta mánuði og munu fjármunirnir verða nýttir til fjárfestinga í fjarskiptafyrirtækjum í A-Evrópu, Miðausturlöndum og í Asíu, að sögn Sureyya Ciliv, forstjóra Turkcell.

Fréttastofur Reuters og búlgarskir fjölmiðlar segja fleiri fjárfestingasjóði horfa til þess að leggja fram tilboð í BTC. Þar á meðal eru tyrkneska símafyrirtækið Turk Telecom og fjárfestingasjóðirnir Providence Equity Partner, Texas Pacific Group, Warburg Pincus Mid-Europa Partners

Novator á hluti í fjölda símafyrirtækja víða í Evrópu, meðal annars í Póllandi, Grikkland og í Finnlandi. Þá átti félagið tékkneska símafélagið Ceske Radiokommunicace, CRa, en seldi hann undir lok nóvember í fyrra.

Hluturinn í BTC, sem Novator tryggði sér fyrir tveimur árum, er stærsta eign fjárfestingafélagsins í símafyrirtækjum í Evrópu. Verðmæti þess hefur fimmfaldast frá einkavæðingu og nemur markaðsvirði þess nú um 1,7 milljóna evra, jafnvirði 152 milljarða íslenskra króna. Gera má ráð fyrir að verðmæti hlutar Novators í símafyrirtækinu hlaupi á tæpum 99 milljörðum íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×