Samdráttur hjá Yahoo 17. apríl 2007 21:47 Merki Yahoo.
Hagnaður bandaríska netfyrirtækisins Yahoo nam 142 milljónum bandaríkjadala, rúmlega 9,2 milljörðum íslenskra króna, á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þetta er 11 prósenta samdráttur frá sama tíma í fyrra. Afkoman er undir væntingum greinenda. Fyrirtækið barist hart á netmarkaðnum við risann Google. Á sama tíma fyrir ári nam hagnaður fyrirtækisins 160 milljónum dala, rúmlega 10,4 milljörðum íslenskra króna. Tekjur fyrirtækisins jukust hins vegar um níu prósent á milli ára og námu 1,18 milljörðum dala, 76,97 milljörðum íslenskra króna. Breska ríkisútvarpið bendir á að Yahoo hafi nýverið innleitt nýtt tölvukerfi sem vonast er til að komi til með að auka auglýsingasölu fyrirtækisins en það færir Yahoo mestar tekjur. Ekki er gert ráð fyrir að krónurnar fari að koma inn í kassann vegna þessa fyrr en á yfirstandandi rekstrarfjórðungi.Nýjustu upplýsingar um stöðu netleitarfyrirtækjanna í Bandaríkjunum benda til að Google ber höfuð og herðar yfir önnur fyrirtæki með 48 prósenta markaðshlutdeild á meðan Yahoo er einungis með 28 prósenta hlutdeild.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira