Aflaverðmæti skipa nam 5,7 milljörðum í janúar 18. apríl 2007 09:00
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 5,7 milljörðum króna í janúar á þessu ári samanborið við 3,6 milljarða í janúar 2006 og jókst því um 2,1 milljarð eða 58,8 prósent á milli ára, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Aflaverðmæti botnfisks nam 4,6 milljörðum króna, sem er 1,6 milljörðum meira en á sama tíma fyrir ári. Aukningin nemur því 50,9 prósentum á milli ára. Verðmæti þorskafla var 2,4 milljarðar króna og jókst um 34,1 prósent síðan í fyrra. Aflaverðmæti ýsu nam tæpum einum milljarði, sem er 57,4 prósentum meira en í fyrra. Þá nam verðmæti ufsaafla 221 milljón króna, sem er 66,3 prósenta aukning frá síðasta ári. Verðmæti flatfiskafla dróst á sama tíma saman um 25,4 prósent en aflaverðmætið nam 245 milljónum króna. Aflaverðmæti uppsjávarafla jókst um 299,4 prósent og nam 866 milljónum. Munar þar mestu um verðmæti loðnu sem nam 773 milljónum, að sögn Hagstofunnar. Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu, nam 2,3 milljörðum króna. Verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innanlands nam 1,3 milljarði en aflaverðmæti sjófrystingar var 1,2 milljarðar. Þá nam verðmæti afla sem fluttur er út óunninn 693 milljónum króna í janúar. Hagstofan vekur sérstaka athygli á því að aflaverðmæti í janúar í fyrra var með minna móti miðað við fyrri ár.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira