Viðskipti innlent

Sparisjóðir Skagafjarðar og Siglufjarðar sameinast

Stjórnir Sparisjóðs Skagafjarðar og Sparisjóðs Siglufjarðar hafa undirritað áætlun um samruna sparisjóðanna. Í tillögu sem lögð verður fyrir fund stofnfjáreigenda er gert ráð fyrir því að eigið fé hins sameinaða sjóðs verði um einn milljarður króna.

Samruni sparisjóðanna var samþykktur á stjórnarfundi þeirra í nóvember síðastliðnum en hann miðast við 1. janúar síðastliðinn.

Eftir samrunann munu stofnfjáreigendur í Sparisjóði Skagafjarðar eiga

12 prósent í sameinuðum sparisjóði en eigendur stofnfjár í Sparisjóði Siglufjarðar 88 prósent. Þá hefur stofnfjáraðilafundur í Sparisjóði Siglufjarðar ákveðið að auka stofna í sparisjóðnum um 516 milljónir króna til að ná  ofangreindri skiptingu.

Stofnfjáraðilar í Sparisjóði Skagafjarðar eru um 140 talsins. Sjóðurinn var stofnaður árið 1907 og hét áður Sparisjóður Hólahrepps. Sjóðurinn starfaði í Hólahreppi fram til ársins 2000, þegar starfsemi hans var flutt til Sauðárkróks

Sparisjóður Mýrasýslu á 99,9 prósent af stofnfé Sparisjóðs Siglufjarðar og er hann dótturfélag Sparisjóðs Mýrasýslu. Sjóðurinn var stofnaður árið 1873 og er elsta starfandi peningastofnun landsins.

Tilkynning sparisjóðanna til Kauphallar Íslands






Fleiri fréttir

Sjá meira


×