Fékk 30 milljónir fyrir hvern spilaðan leik 29. apríl 2007 01:38 Grant Hill var á sínum tíma einn allra besti leikmaður NBA deildarinnar NordicPhotos/GettyImages
Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic sagðist í gær vera að íhuga að leggja skóna á hilluna í sumar. Lið hans féll úr úrslitakeppninni fyrir Detroit í gær og Hill er með lausa samninga í sumar. Ferill kappans hefur einkennst af erfiðri baráttu við meiðsli, en hann þarf þó ekki að hafa áhyggjur af peningamálunum. Hill var einn allra besti leikmaður NBA deildarinnar á síðasta áratug og eftir að hafa leikið fyrstu árin á ferlinum með Detroit, skrifaði hann undir sjö ára samning við Orlando árið 2000 upp á 93 milljónir dollara. Hill spilaði aðeins 4, 14 og 29 leiki fyrstu þrjú ár sín með liðinu vegna þrálátra ökklameiðsla og ekki einn einasta leik á fjórða tímabilinu. Hugleiddi hann þá oft að leggja skóna á hilluna en þraukaði í endurhæfingunni og hefur náð að leggja sitt af mörkum síðustu tvö tímabil. Hill hefur því aðeins spilað 200 leiki af 574 mögulegum á samningstímanum og það þýðir að hann hefur fengið um 30 milljónir króna fyrir hvern spilaðan leik með Orlando. Hill vill ólmur launa Orlando þolinmæðina og segist vilja semja við félagið á ný, en margir telja þó líklegt að hann muni freista þess að komast að hjá liði sem á möguleika á að vinna meistaratitilinn á næsta ári - og þá jafnvel á miklu lægri launum en hann hefur þegið hingað til. Hill verður 35 ára gamall í nóvember og var með 14,4 stig að meðaltali í leik í vetur, 3,6 fráköst og 2,1 stoðsendingu.
NBA Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira