Auðvelt hjá New Jersey 30. apríl 2007 04:17 Vince Carter fær ekki góðar viðtökur í Toronto í næsta leik - en Kanadamennirnir þurfa nú á kraftaverki að halda til að vinna einvígið NordicPhotos/GettyImages
New Jersey Nets er komið með þægilega 3-1 forystu gegn Toronto Raptors í úrslitakeppni NBA eftir auðveldan sigur í fjórða leik liðanna í New Jersey í nótt 102-81. New Jersey valtaði yfir mótherja sína strax í byrjun og leiddi 56-37 í hálfleik á bak við annan stórleik frá Jason Kidd og Vince Carter. Gestirnir frá Toronto virkuðu hreinlega úti á túni í leiknum og áttu aldrei möguleika. Næsti leikur í einvíginu fer fram í Toronto, en eins og staðan er núna er erfitt að sjá Kanadaliðið koma spennu í einvígið á ný. Vince Carter skoraði 27 stig fyrir Nets í nótt og hirti auk þess 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar á aðeins 30 mínútum. Jason Kidd skoraði 17 stig, hirti 8 fráköst, gaf 13 stoðsendingar og hitti úr 5 af 6 þristum sínum. Richard Jefferson skoraði 23 stig. Andrea Bargnani skoraði 16 stig fyrir Toronto og þeir Chris Bosh og TJ Ford 13 hvor. Bosh hirti auk þess 11 fráköst, en hann hefur ekki náð sér á strik í síðustu tveimur leikjum og hefur valdið miklum vonbrigðum í einvíginu. Þetta var næst stærsti sigur New Jersey í úrslitakeppni í sögu félagsins, en sigurinn hefði ef til vill verið miklu stærri ef bæði lið hefðu ekki hvílt lykilmenn í fjórða leikhluta.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Fótbolti „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Fleiri fréttir Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Sjá meira