Talsverður viðsnúningur hjá 365 10. maí 2007 16:39
365 hf tapaði 35 milljónum króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta er talsverður viðsnúningur frá síðasta ári þegar félagið skilaði tapi upp á 441 milljónir króna af sambærilegri starfsemi. Ari Edwald, forstjóri 365, segir ánægjulegt að sjá rekstrarbata koma fram á fyrsta ársfjórðungi og að rekstur félagsins sé samkvæmt áætlun. Rekstrarhagnaður fyrirtæksins fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á tímabilinu nam 139 milljónum króna samanborið við 76 milljóna króna rekstrartap á sama tíma í fyrra. Eigið fé samstæðunnar, sem samanstendur af 365 miðlum ehf., Senu ehf., Sagafilm ehf., D3 ehf. og Inn hf., nam 6.604 milljörðum króna í lok tímabilisins og var eiginfjárhlutfall 36,6 prósent. Þá nam handbært fé frá rekstri og markaðverðbréf 207 milljónum króna í lok fjórðungsins. Ari Edwald, forstjóri 365, segir í uppgjöri félagsins, að reksturinn sé samkvæmt áætlun. „Undanfarin misseri hafa verið tími mikilla umbreytinga hjá 365 hf. Vinna við þessar breytingar hefur verið tímafrek, kostnaðarsöm og reynt mikið á starfsfólk félagsins. Það er því ánægjulegt að sjá rekstrarbata koma fram á fyrsta ársfjórðungi," segir hann og bætir við að skuldir félagsins hafi verið lækkaðar mjög hratt. Uppgjör 365
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira