Síminn kynnir þriðju kynslóðina 30. maí 2007 15:30 Farsími af þriðju kynslóð farsímakerfa sem Síminn kynnti blaðamönnum í dag. Mynd/Anton
Síminn kynnir í verslunum sínum á morgun nýjungar í farsímaþjónustu, sem grundvallast á þriðju kynslóð farsímakerfa (3G). Gestum gefst kostur á að kynna sér þá byltingu sem í vændum er þegar þriðja kynslóð farsímakerfa verður tekin í notkun í fyrsta sinn á Íslandi í haust. Í tilkynningu frá Símanum kemur fram að á meðal helstu nýjunganna í þriðju kynslóð farsímakerfa eru myndsímtöl, þar sem viðmælendum gefst kostur á að sjá hvor annan meðan á samtali stendur og móttaka sjónvarps í farsíma í meiri gæðum en áður hefur þekkst í farsímum. Jafnframt aukast möguleikar á nettengingu fartölva til muna, því með sérstöku gagnakorti fæst nettenging sem samsvarar hraða ADSL-tenginga á svæðum þar sem þriðja kynslóð farsímakerfa verður innleidd. Stefnt er að því að Síminn bjóði 3G þjónustu á höfuðborgarsvæðinu í haust og hefji að því loknu uppbyggingu á landsbyggðinni. Í 3G-rekstrarleyfi Símans er gert ráð fyrir að eftir tvö og hálft ár muni kerfið ná að lágmarki til 60-80 prósenta íbúa landsbyggðarinnar. Útbreiðslan verður mismunandi eftir landshlutum og verður mest á Suðurlandi og Suðurnesjum, eða tæplega 80 prósent. Eftir fimm og hálft ár er gert ráð fyrir að kerfið nái til að lágmarki 75 prósent allra íbúa landsbyggðarinnar, að því er segir í tilkynningu Símans.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira