Viðskipti innlent

Minna tap hjá Flögu

Flaga skilaði tapi upp á 605 þúsund bandaríkjadali, 37,4 milljónum króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins. Til samanburðar nam tapið á sama tíma í fyrra 877 þúsundum dala, 54,1 milljón króna.

Í uppgjöri yfirtækisins kemur fram að EBITDA framleigt hafi verið neikvæð um 202 þúsund dali, jafnvirði 12,4 milljónir króna samanborið við 71 þúsund dali, 4,4 milljónir króna, á sama í fyrra. Skrifast það að miklu leyti á skipulagsbreytingar.

Tekjur námu 7,2 milljónum dala, rúmum 444 milljónum króna, sem er 2,4 prósenta samdráttur í samanburði við fyrsta fjórðung 2006.

Eigið fé lækkaði lítillega á tímabilinu. Það nam 39,6 milljónum dala, um 2.443 milljónum króna, í lok mars samanborið við 40,2 milljónir dala, 2.480 milljónir í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfallið í lok fyrsta fjórðungs var 65 prósent, sem er óbreytt frá árslokum 2006.

Í uppgjörinu segir ennfremur að eftirspurn eftir þjónustu Sleeptech hafi haldið áfram að vaxa í norð-austurhluta Bandaríkjanna. Nokkrir samningar Sleeptech við sjúkrahús hafa verið endurnýjaðir á tímabilinu og hafi fyrirtækið haldið áfram að vera einn stærsti veitandi þjónustu á sviði svefnmælinga á sínum markaði.

Þá segir að endurskipulagningu á starfsemi Emblu sé lokið og vinni félagið nú að því að tryggja samband sitt við viðskiptavini og dreifiaðila um allan heim með því að innleiða samhæfða vörustjórnun og áframhaldandi aukningu í hagkvæmni og skilvirkni. Í Bandaríkjunum hafi Embla og Embletta verið valin af viðkomandi yfirvöldum „American Academy of Sleep Medicine" til að vera staðall fyrir rannsóknir á gagnsemi heimamælinga við svefnrannsóknir. Þessi tilraun geti orðið til þess að heimamælingar við svefnrannsóknir verði heimilaðar í Bandaríkjunum og að tryggingafélög fari þá að greiða fyrir þær. Það geti haft umtalsverð áhrif á sölu Emblettu í Bandaríkjunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×