Viðsnúningur í afkomu Spalar 1. júní 2007 12:21 Hvalfjarðargöng. Mynd/Pjetur
Spölur, sem er í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. og rekur Hvalfjarðargöng, skilaði hagnaði upp á 89 milljónir króna á fyrri helmingi síðasta rekstrarárs, sem stóð frá 1. október í fyrra til 31. mars í ár. Til samanburðar nam tap fyrirtækisins árið á undan 83 milljónum króna. Á öðrum fjórðungi rekstrarársins, sem stendur frá janúar til marsloka, nam hagnaður félagsins 67 milljónum króna. Þetta er talsverður viðsnúningur frá árinu á undan þegar tapið nam 64 milljónum króna. Í uppgjöri Spalar kemur fram að veggjald hafi numið 399 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum rekstrarársins. Til samanburðar nam það 382 milljónum króna á sama tíma árið á undan. 790 þúsund ökutæki fóru um göngin á fyrri helmingi rekstrarársins sem er 7 prósenta aukning á milli ára. Rekstrarkostnaður Spalar án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam 109 milljónum króna en það er rúmlega 12 prósenta hækkun frá sama tíma í fyrra þegar kostnaðurinn nam 97 milljónum króna. Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir í tilkynningu félagsins heildarafkomuna vel í takt við áætlanir félagsins. Framundan séu umferðarmestu mánuðir ársins sem að öllu jöfnu eru með um 60 prósent af tekjunum. Uppgjör Spalar
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fleiri fréttir „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Sjá meira