Skuldatryggingarálag bankanna lækkar 7. júní 2007 16:30
Skuldatryggingarálag bankanna hefur farið lækkandi frá því um miðjan mars. Greiningardeild Landsbankans segir lækkunina í raun ná lengra aftur en skuldatryggingarálagið náði hámarki fyrir rúmu ári þegar það var margfalt hærra en nú. Deildin bendir á í Vegvísi sínum í dag að þróunin hafi þó ekki verið sú sama hjá öllum bönkunum frá byrjun mars. Hafi álagið hækkað um 1,94 punkta hjá Glitni en lækkað um 1,63 punkta hjá Kaupþingi og um 2,87 punkta hjá Landsbankanum á sama tíma. Sé horft til skemmri tíma, eins mánaðar, hafi álagið lækkað hjá öllum bönkunum, um 2,3 punkta hjá Glitni, 2,8 punkta hjá Landsbankanum og 3,8 punkta hjá Kaupþingi. Þetta er svipuð þróun, og heldur hraðari, og hjá ITRAXX Europe vísitölunni, sem mælir þróun skuldatryggingarálags í álfunni, að sögn greiningardeildar Landsbankans. Deildin segir að aðgerðir bankanna virðast skýra þróun skuldatryggingarálags þeirra. Kaupþing og Landsbanki hafi lækkað töluvert umfram lækkun viðmiðunarvísitölu frá því í mars. Lækkunin hjá Glitni er hins vegar svipuð og lækkun vísitölunnar. Helsta ástæðan jákvæðrar þróunar skuldatryggingarálags Kaupþings og Landsbankans er að öllum líkindum vaxandi hlutfall innlána í heildarfjármögnum auk annarra aðgerða sem bankarnir hafa gripið til í framhaldi af gagnrýni sem þeir urðu fyrir í fyrra, að sögn Landabankans. Vegvísir greiningardeildar Landsbankans
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira