Gluggað í bækur Alcan 20. júní 2007 15:34 Frá álveri Alcan í Straumsvík. MYND/Haraldur
Orðrómur er uppi um að kanadíski álrisinn Alcan, móðurfélag álversins í Straumsvík, hafi opnað bókhald sitt fyrir náma- og álfélögin BHP Billiton og Rio Tinto, sem sögð eru hafa hug á að gera yfirtökutilboð í félagið. Stjórn Alcan hefur ekki viljað tjá sig um fréttirnar. Ástralska dagblaðið Sydney Morning Herald segir í dag að viðræður séu á byrjunarstigi. Bandaríski álrisinn Alcoa er á meðal annarra félaga sem orðað hefur verið við yfirtöku á Alcan en félagið gerði 33 milljarða bandaríkjadala, rétt tæplega 2.100 milljarða íslenskra króna, óvinveitt tilboð í álfélagið í byrjun maí. Anik Michaud, talsmaður Alcan, sagði félagið ekki tjá sig um orðróm. Hann myndi því hvorki staðfesta né neita fréttum af málinu. Tilboð hefur enn ekki borist frá BHP og Rio Tinto en breska blaðið Times segir það geta hljóðað upp á allt að 40 milljarða dala, tæpa 2.500 milljarða íslenskra króna.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Norskir fjölmiðlar í hart við Meta EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Skoða að sameina Tesla og SpaceX Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Sýndu fljúgandi Roadster Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? Adidas í mál vegna fjögurra randa hönnunar Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Sjá meira