Sparisjóður Bolungarvíkur keyrir á verðbréfaeign 5. september 2007 10:24
Sparisjóður Bolungarvíkur hagnaðist um 230 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins samanborið við 62 milljónir á sama tíma í fyrra. Þetta jafngildir því að hagnaðurinn hafi tæplega fjórfaldast á milli ára. Mestu munar um tekjur af veltufjármunum og öðrum eignum en vaxta- og þjónustutekjur drógust saman á milli ára. Í uppgjöri sparisjóðsins kemur fram að hreinar þjónustutekjur rúmum 9,2 milljónum króna á tímabilinu en þær voru 11,9 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum síðasta árs. Hreinar rekstrartekjur nú hækka hins vegar úr 202,5 milljónum króna í 395 milljónir króna. Þar af nemur hreinar tekjur af veltufjármunum og veltuskuldum 24,3 milljónum króna en hreinar tekjur af öðrum fjáreignum á gangvirði í gegnum rekstur, svo sem af hlutabréfaeign, 287,9 milljónum króna. Þetta er talsverð hækkun á milli mánaða. Þá nam eigið fé 1.464 milljónum króna og var arðsemi eigin fjár var 37,5 prósent á fyrstu sex mánuðum ársins en var 11,8 prósent á sama tíma í fyrra. Eiginfjárhlutfall nam 20,7 prósentum í lok júní en var 24,3 prósent undir lok síðasta árs. Heildareignir nema rúmum sjö milljörðum króna og aukast þær um 4,6 prósent frá lokum síðasta árs. Í uppgjörinu segir að afkoman hafi verið umfram væntingar á fyrstu sex mánuðum ársins. Gert er ráð fyrir að hún verði góð á seinni hluta árs en tekið fram að ekki sé gert ráð fyrir sömu hækkunum á verðbréfum sjóðsins á tímabilinu. Uppgjör Sparisjóðs Bolungarvíkur
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira