Greg Oden úr leik hjá Portland 13. september 2007 22:41 Greg Oden spilar tæplega með Portland á næsta tímabili NordicPhotos/GettyImages
NBA lið Portland Trailblazers varð fyrir gríðarlegu áfalli í dag þegar í ljós kom að nýliði liðsins Greg Oden þarf að fara í stóran hnéuppskurð og spilar því líklega ekkert með liðinu í vetur. Oden var valinn fyrstur í nýliðavalinu í sumar og bundu forráðamenn Portland miklar vonir við piltinn. Þessi leiðinlega uppákoma hefur strax vakið upp minningar frá árinu 1984 í Portland, en þá valdi liðið miðherjann Sam Bowie númer tvö í nýliðavalinu. Bowie þótti mikið efni en meiddist fljótlega og náði ferlinum aldrei á strik eftir það. Maðurinn sem valinn var númer þrjú í nýliðavalinu það árið er flestum að góðu kunnur, en það er sexfaldur NBA-meistari Michael Jordan. Portland átti fyrsta valréttinn í nýliðavalinu í sumar, en Seattle valdi þá hinn magnaða Kevin Durant númer tvö. Þessir tveir þóttu tveir langbestu leikmennirnir í nýliðavalinu í sumar og margir vildu meina að Durant væri meira efni í ofurstjörnu í deildinni. Það er því spurning hvort forráðamenn Portland eru farnir að hafa efasemdir um val sitt í sumar, en þeir verða líklega að bíða í að minnsta kosti eitt ár eftir að sjá fjárfestingu sína spila leik í NBA.
NBA Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira