Fótbolti

Eiður í byrjunarliðinu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Eiður er í byrjunarliði Barcelona.
Eiður er í byrjunarliði Barcelona.

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem leikur gegn Lyon í Meistaradeildinni í kvöld. Leikurinn fer fram í Frakklandi og hefst klukkan 19:45 en hann verður í beinni útsendingu á Sýn.

Barcelona verður án Thierry Henry í kvöld. Brasilíumaðurinn Ronaldinho kemur inn í hópinn en hann var ekki með í 3-0 sigri á Recreativo um helgina þar sem Eiður Smári var einnig í byrjunarliðinu.

Ronaldinho verður á bekknum í kvöld. en byrjunarlið Barcelona er: Valdés, Milito, Puyol, Xavi, Eiður, Inieasta, Zambrotta, Messi, Abidal, Toure og Bojan.

Barcelona er í góðum málum ósigrað á toppi riðilsins en frönsku meistararnir verða að vinna ætli þeir að halda voninni um sæti í sextán liða úrslitunum á lífi.

Lyon er stigi á eftir Rangers sem gæti tryggt sér sætið með því að vinna Stuttgart á útivelli á sama tíma og Barcelona vinnur í Frakklandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×