Skuggahliðin á skattkerfinu útskýrð Björgvin Guðmundsson skrifar 27. febrúar 2008 06:00 Tryggvi Þór Herbertsson, Ragnar Árnason og Pétur Blöndal ræddu nýútkomna bók, sem RSE gefur út, á fundi í Iðnó í fyrradag. Niðurstaðan var að tekjuskattar, sérstaklega stigvaxandi tekjuskattar, drægju úr vinnuframlagi, sem hefði áhrif á lífskjör allra. „
Við vonumst auðvitað til þess, því við höfum trú á bókinni, að sem mest af því sem þarna kemur fram náist í gegn,“ sagði Ragnar Árnason hagfræðiprófessor þegar hann kynnti nýútkomna bók, Skattalækkanir til kjarabóta, fyrir Pétri Blöndal, alþingismanni og formanni efnahags- og skattanefndar Alþingis, í fyrradag. Það er Rannsóknamiðstöð um samfélags- og efnahagsmál sem gefur bókina út, sem er í ritstjórn Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors og Tryggva Þórs Herbertssonar, forstjóra Aska Capital. „Þetta er gagnmerkt rit um þann ábata sem þjóðfélög geta fengið af því að lækka skatta,“ sagði Tryggvi Þór. Tvær greinar eru fræðilegs eðlis, önnur eftir nóbelsverðlaunahafann Edward C. Prescott og aðstoðarkonu hans og hin eftir Ragnar Árnason. Tryggvi segir aðrar greinar lýsa raunverulegum aðstæðum. Ragnar segir að allir höfundar séu doktorar í sinni fræðigrein, fimm prófessorar og þrír forstöðumenn alþjóðlegra rannsóknarstofnana. „Allir þessir menn vekja athygli á því að frá þeirra sjónarhorni eru tekjuskattar, sérstaklega stigvaxandi tekjuskattar, stór áhrifavaldur um það vinnuframlag sem fólk kýs að inna af hendi yfir ævina. Þar með dregur úr vinnuframlaginu og um leið þjóðarframleiðslunni. Þar með er minna til skiptanna. Þetta er skuggahliðin á skattakerfinu sem má aldrei gleymast, jafnvel þótt við ímyndum okkur að skatturinn sé notaður í góðum tilgangi,“ útskýrir Ragnar. „Þessi bók er örugglega gott innlegg í þá umræðu sem við eigum alla daga í efnahags- og skattanefnd. Þar leggjum við að sjálfsögðu þann ramma sem atvinnulífið og einstaklingar búa við, aðalrammann sem er skattheimtan. Ég kalla það aðalrammann því skattheimtan er afar mikilvægt tæki í samskiptum borgaranna. Til dæmis er skattheimta fyrirtækja veigamesti þátturinn í ákvörðun um staðsetningu,“ sagði Pétur Blöndal þegar hann tók við fyrsta eintaki bókarinnar. „Menn þurfa að vera meðvitaðir um það að skattstofninn er eins og klár. Ef við klyfjum klárinn of mikið með grjóti eða heyi eða hverju sem er, verður hann meira og meira hægfara. Þegar hann er kominn með mörg tonn á bakið þá stoppar hann,“ sagði Pétur. „Það er svipað með atvinnulífið. Þegar byrðarnar eru léttar er klárinn galvaskur og hleypur um allt og dregur allt þjóðfélagið með sér. Ef hlaðið er of mikið á hann kiknar hann undan byrðinni. Það að efla atvinnulífið er um leið lífskjarabót fyrir launþegana, sem geta þá fengið hærri laun og þar af leiðandi borgað hærri skatta og þurfa ekki eins mikið af bótum. Allt hangir þetta saman. Það er mjög mikilvægt að menn átti sig á því hvar hámarkið á Laffer-kúrfunni sé og passi sig að vera fyrir neðan það.“ „Ég vek athygli á því að það eru athuganir í gangi til að meta þessa svokölluðu Laffer-kúrfu betur hér á Íslandi. Það litla sem við höfum séð af niðurstöðum úr því er það að við séum yfir hámarki varðandi tekjuskatt í það minnsta einstaklinga og sennilega fyrirtækja líka. Enda hefur verið ákveðið að lækka skatt á fyrirtæki og tekjuskattar einstaklinga hafa lækkað,“ sagði Ragnar. „Punkturinn er kannski ekki bara sá hvar þetta hámark er heldur að við viljum aldrei nokkru sinni fara yfir hámarkið. Ekki einu sinni nálgast það. Það er ekki þar með sagt, þótt við höfum ekki hámarkað skatttekjur ríkissjóðs, að við séum ekki með rétta skattheimtu. Alls ekki. Allir skattar, alveg frá núlli og upp úr, hafa áhrif á vilja og fúsleika fólks til að vinna og þar með á það sem framleitt er í landinu,“ bætti hann við. Ragnar vakti líka athygli á því í þessu samhengi að hámarkið á Laffer-kúrfunni hefði örugglega lækkað vegna heimsvæðingarinnar. „Allir skattstofnar í dag eru orðnir kvikari en þeir voru. Ekki bara fyrirtæki heldur jafnvel einstaklingar færa búsetu, skattfang, milli landa með tilliti til skatta. Þetta hefur færst í aukana og eykst örugglega í framtíðinni. Þetta tengist skattasamkeppni sem tvær greinar fjalla um í bókinni, sem annars vegar segja að lönd verði að taka þátt í skattasamkeppninni og hins vegar að skattasamkeppnin sé góð vegna þess að hún veiti ríkisstjórnum aðhald. Alveg eins og samkeppni milli fyrirtækja á markaði er góð. Æ fleiri greiða atkvæði með fótunum núorðið,“ sagði Ragnar.
Birtist í Fréttablaðinu Héðan og þaðan Mest lesið Langaði svakalega mikið í sleik við George Clooney Atvinnulíf Stöðva þurfi rányrkju bílastæðaeigenda Neytendur Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Viðskipti erlent Útlit fyrir frekari verðhækkanir á kaffimarkaði Neytendur Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Viðskipti erlent Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir 4,4 milljarðar til borgarinnar vegna framkvæmda á Hólmsheiði Fegurð er glæpur kom út í mínus Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Bein útsending: Ársfundur atvinnulífsins Hjalti Már tekur við af Hreiðari Þór hjá Datera Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Heildareignir einstaklinga jukust um rúm fimm prósent á síðasta ári Fleiri leigi nú af vinum og ættingjum Sjúkratryggingar grunaðar um ríkisaðstoð Sparar kylfingum tíma með rástímaleitarsíðu Sótti 410 milljónir og margfaldaði starfsmannafjöldann Aðgerðir stjórnvalda eigi líka að taka mið af æviskeiði Steinar fjárfestir í Snjallgögnum Bjørn Richard til liðs við Athygli Fljúga til Gautaborgar næsta sumar Meirihluti auglýstra nýbygginga óseldur Sjálfbærnisviðið lagt niður og Erla Ósk hættir Hafsteinn Dan nýr lagaprófessor við HR Ráðin nýr yfirlögfræðingur Hugverkastofunnar Hafa ekki tekið ákvörðun um vaxtahækkun „Þetta hefur slæm áhrif á heimilin sem hafa augljóslega minna á milli handanna“ Flytja Friday's innan Smáralindar og fjölga stöðunum Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X Íslandsbanki hækkar líka vexti verðtryggðra lána Séreign inn á húsnæðislán hafi nýst sterkefnuðum mest Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Ekki króna í þrotabúi Base parking Sjá meira