Hack-a-Shaq fyrirbærið til skoðunar í NBA 8. maí 2008 13:37 Shaquille O´Neal var ítrekað sendur á línuna gegn San Antonio NordcPhotos/GettyImages
David Stern, forseti NBA, segir að mótanefnd deildarinnar ætli sér að taka fyrirbærið Hack-a-Shaq til skoðunar þegar hún kemur saman í Orlando í næsta mánuði. Þetta fyrirbæri setti svip sinn á fyrstu umferð úrslitakeppninnar þegar leikmenn San Antonio brugðu á það ráð af og til í einvíginu gegn Phoenix að brjóta á Shaquille O´Neal í tíma og ótíma þó hann væri fjarri boltanum. Þessi "leikaðferð" hefur verið nefnd Hack-a-Shaq í höfuðið á Shaquille O´Neal, því henni var fyrst beitt með það fyrir augum að senda O´Neal á vítalínuna. Hann er afleit vítaskytta og segja má að herbragð San Antonio hafi gengið ágætlega í fyrstu umferðinni því O´Neal var aðeins með 50% vítanýtingu í einvíginu. San Antonio vann einvígið gegn Phoenix 4-1 og komst áfram. Bæði fjölmiðlamenn og NBA aðdáendur hafa lýst yfir mikilli óánægju með þetta fyrirbæri, enda hægir það á leiknum og fáir hafa þar að auki gaman af því til lengdar að sjá skelfilegar vítaskyttur eins og Shaquille O´Neal taka 20 vítaskot í leik.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira