Tekst Lakers að jafna metin í nótt? 12. júní 2008 18:00 Pau Gasol hefur alls ekki náð sér á strik í úrslitaeinvíginu NordcPhotos/GettyImages
Fjórði leikur LA Lakers og Boston Celtics í lokaúrslitum NBA fer fram í Los Angeles klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Lakers-liðið getur jafnað metin í 2-2 í einvíginu með sigri í nótt. Boston vann fyrstu tvo leikina í einvíginu sem fram fóru í Boston en Lakers vann baráttusigur í þriðja leiknum í Los Angeles á þriðjudagskvöldið. Fimmti leikur liðanna verður líka í Los Angeles, en síðustu tveir leikirnir verða svo í Boston ef með þarf. Lakers-liðið hefur unnið alla níu heimaleiki sína í úrslitakeppninni, en liðið vann frekar nauman 87-81 sigur í þriðja leiknum. Heimamenn voru ekki sérlega sannfærandi í síðasta leik þar sem þeir Pau Gasol og Lamar Odom voru báðir fjarri sínu besta og skoruðu aðeins 13 stig samanlagt. Það var einna helst stórleikur þeirra Kobe Bryant (36 stig) og Sasha Vujacic (20 stig) sem tryggði Lakers sigurinn. Lykilmenn Boston voru líka langt frá sínu besta í síðasta leik sem einkenndist af mikilli taugaspennu. Paul Pierce hitti þannig aðeins úr 2 af 14 skotum sínum og skoraði 6 stig og Kevin Garnett hitti aðeins úr 6 af 21 skoti og skoraði 13 stig. Leikurinn í nótt hefst sem fyrr segir klukkan eitt eftir miðnætti og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira