Körfubolti

Troðkóngurinn vill verja titilinn

Howard brá sér í búning Ofurmennisins í troðkeppninni í febrúar
Howard brá sér í búning Ofurmennisins í troðkeppninni í febrúar NordicPhotos/GettyImages

Miðherjinn Dwight Howard hjá Orlando Magic segist ólmur vilja verja titil sinn sem troðkóngur NBA deildarinnar um stjörnuhelgina í febrúar.

Howard sló í gegn í troðkeppninni síðast þegar hann klæddist meðal annars Súpermann-búningi og þótti sýna skemmtileg tilþrif.

"Ég var einmitt að hugsa um það í gær og velta fyrir mér hvaða troðslur ég ætti að reyna næst," sagði miðherjinn öflugi í samtali við Orlando Sentinel.

Howard átti hrikalegan leik í nótt sem leið þegar Orlando lagði Oklahoma á útivelli 109-92. Hann skoraði 30 stig, hirti 19 fráköst og varði 10 skot - og náði þar með fyrstu þreföldu tvennu sinni á ferlinum.

 



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×