87 sinnum yfir 40 stig 15. janúar 2008 09:44 Kobe Bryant hefur haft sig mun meira í frammi í stigaskorun síðan Shaquille O´Neal fór frá Lakers NordicPhotos/GettyImages
Kobe Bryant hjá LA Lakers skoraði 48 stig fyrir liðið í sigrinum á Seattle í nótt. Þetta var í 87. skiptið á ferlinum sem Bryant skorar 40 stig eða meira í NBA deildinni og nú vantar hann aðeins einn 40 stiga leik til að komast í þriðja sætið yfir flesta 40+ stiga leiki á ferlinum. Það er goðsögnin Wilt Chamberlain sem er langefstur á þeim lista, en hann skoraði 40 stig eða meira í 271 leik á ferlinum og er jafnframt eini maðurinn sem skorað hefur 100 stig í leik í NBA deildinni. Annar á listanum er Michael Jordan, en hann skoraði 170 sinnum 40 stig eða meira á ferlinum. Lakers maðurinn Elgin Baylor er svo í þriðja sæti listans og skoraði hann 88 sinnum 40 stig eða meira og því vantar Bryant aðeins einn 40 stiga leik til að komast upp að hlið hans. Maðurinn í fimmta sæti listans er svo enn að, en það er hinn smái en knái Allen Iverson hjá Denver sem hefur skorað 40 stig eða meira 79 sinnum á ferlinum. Það sem er líklega athygliverðast við árangur Kobe Bryant í þessum 87 leikjum hans með 40 stig eða meira, er að flestir þeirra, 57 talsins, hafa komið eftir að Shaquille O´Neal var skipt frá Lakers leiktíðina 2004-05.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira