Oden æfði með Portland 13. mars 2008 16:22 NordcPhotos/GettyImages
Miðherjinn Greg Oden æfði með liði Portland í 45 mínútur í dag og var í nógu góðu formi til að troða boltanum nokkrum sinnum á æfingunni. Oden var valinn fyrstur í nýliðavalinu í NBA síðasta sumar og voru gríðarlegar væntingar bundnar við hann á sínu fyrsta tímabili. Hann meiddist hinsvegar í sumar og þurfti í uppskurð á hné sem olli því að hann varð að sleppa öllu nýliðaárinu sínu. Hann hefur verið í endurhæfingu í allan vetur og tók þátt í æfingu með liðinu í fyrsta skipti í dag eftir uppskurðinn. "Þetta var gaman. Mér leið vel og ég fann ekkert til í hnénu," sagði Oden kátur í samtali við Oregonian, en að sögn blaðsins var hann í ágætu formi og tróð boltanum nokkrum sinnum. Ekki voru gerðar miklar væntingar til Portland liðsins fyrir yfirstandandi leiktíð vegna meiðsla Oden, en liðið afsannaði allar hrakspár og hefur staðið sig betur en nokkur þorði að vona. Það verður því áhugavert að sjá til lærisveina Nate McMillan á næstu leiktíð þegar menn gera sér vonir um að Oden verði kominn á fullt á ný.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Sjá meira