Körfubolti

Keflavík minnkar muninn

Elvar Geir Magnússon skrifar
Keflvíkingar eru vaknaðir.
Keflvíkingar eru vaknaðir.

Keflavík vann ÍR með 33 stiga mun í undanúrslitum Íslandsmótsins í körfubolta í kvöld. Staðan í einvíginu er því orðin 2-1 ÍR-ingum í vil og Breiðhyltingar gátu tryggt sér í úrslitin með sigri í kvöld.

Keflvíkingar voru talsvert betri í leiknum í kvöld og höfðu yfir í hálfleik 51-37. Bobby Walker skoraði 23 stig fyrir Keflavík og Tommy Johnson var með 22 stig.

Stigahæstur í liði ÍR var Nate Brown með 18 stig. Takist Keflavík að vinna sigur í næsta leik sem fram fer í íþróttahúsi Seljaskóla verður oddaleikur í Toyota-sláturhúsinu í Keflavík.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×