Marsleiðangri Fönix lokið - vetur á Mars Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. nóvember 2008 07:30 MYND/NASA
Könnunarleiðangri geimfarsins Fönix sem lenti á Mars í maílok er lokið vegna veðurs. Sandstormur á Mars hefur gert það að verkum að skynfæri könnunarfarsins Fönix sjá ekki glóru ef svo má að orði komast. Auk þess hafa fjarskiptin rofnað og hafa menn hjá NASA nú ekki heyrt bofs frá þessum augasteini sínum síðan 2. nóvember. Leiðangrinum hefur því opinberlega verið hætt. Leiðangursstjórinn Barry Goldstein segir þetta vonbrigði en enginn megi sköpum renna og hann og vinnufélagarnir verði því að bíta í það súra epli að fá ekki að sinni óyggjandi sannanir um hvort vatn, ís og fleira sé að finna á plánetunni rauðu. Það var ljóst frá upphafi að geimfar á borð við Fönix þyldi aldrei veturinn á Mars sem nú er um það bil að skella á líkt og hér. Eitthvað er þó talað um að ræsa megi Fönix að nýju þegar vorar á Mars en sú áætlun er þó ekkert sem menn vilja hengja hatt sinn á að svo stöddu.
Vísindi Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira