Tónlist

Sign fékk gullplötu fyrir lag á safnplötu Kerrang!

Sign með gullplötuna góðu.
Sign með gullplötuna góðu.

Árleg verðlaunahátíð Kerrang! tímaritsins fór fram í gærkvöldi. Á meðal viðurkenninga sem voru veittar var gullplata til þeirra hljómsveita sem tóku þátt í að heiðra Iron Maiden með ábreiðu en safndiskur var gefinn út með tímaritinu fyrr í sumar. Tímaritið seldist í yfir hundrað þúsund eintökum þá vikuna en venjuleg sala er í kringum fjörtíu þúsund eintök. Sign voru sérstakir gestir ritstjóra Kerrang! Paul Brannigan en hann hefur verið einlægur stuðningsmaður þeirra um langt skeið.

Sign strákarnir gerðu sína útgáfu af Run to the Hills eins og frægt er orðið. Ábreiðan hefur vakið mikla athygli í Bretlandi og í nýlegu viðtali við Ragnar Sólberg í London Live blaðinu segir blaðamaður í inngangi að aðeins þeir fífldjörfustu eða hugrökkustu hefði dottið í hug að ráðast á frægasta lag rokkgoðanna en bætir við að ábreiðan sé sérlega frumleg og vel heppnuð.

Mikil viðbrögð urðu við útgáfu Sign á bloggsíðum og skiptist fólk í tvær fylkingar. Sumir hafa gengið svo langt að kalla þetta guðlast en aðrir hafa haldið því fram að ábreiða Sign sé betri en frumgerðin.

Sign kláruðu fjögurra tónleika ferð til Bretlands þar sem þeir spiluðu meðal annars á Gay Pride í Donaster og enduðu ferðina á Kerrang! verðlaunahátíðinni í gærkvöldi.

Sign spila á Menningarnótt á morgun, laugardag, og á Ljósanótt, 4. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×