Körfubolti

KR ekki í vandræðum með FSu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Helgi Már Magnússon og Jason Dourisseau, leikmenn KR.
Helgi Már Magnússon og Jason Dourisseau, leikmenn KR. Mynd/Vilhelm

KR vann í kvöld 22 stiga sigur á FSu í Iceland Express deild karla en staðan í hálfleik var 42-21, KR í vil.

KR jók svo forystuna í þriðja leikhluta en FSu náði að minnka muninn um tíu stig í síðasta leikhlutanum.

Jason Dourisseau og Jakob Örn Sigurðarson voru stigahæstir í liði KR með þrettán stig hvor. Helgi Már Magnússon kom næstur með ellefu og Jón Arnór Stefánsson skoraði tíu.

Hjá FSu var Sævar Sigmundsson stigahæstur með fimmtán stig. Christopher Caird skoraði ellefu, rétt eins og Árni Ragnarsson.

Þá vann Breiðablik sigur á ÍR, 93-88.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×