LeBron talaði ekki við neinn eftir tapið í nótt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2009 15:15 LeBron James hjá Cleveland Cavaliers. Mynd/GettyImages
LeBron James hjá Cleveland Cavaliers var allt annað en sáttur eftir að lið hans féll úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Orlando Magic fór illa með James og félaga sem allir bjuggust við að færu alla leið í lokaúrslitin. Þar mætast hinsvegar Orlando og Los Angeles. LeBron James yfirgaf leikvöllinn um leið og klukkan rann út og þakkaði engum fyrir leikinn eða einvígið. Hann hélt sér til hlés út í horni búningsklefans á meðan hann klæddi sig og lokaði sig frá umheiminum með risastórum heyrnatólum. James var síðan fyrstur út úr klefanum, strunsaði út í rútu sem var á leiðinni út á flugvöll. James kom ekki á blaðamannafundinn eftir leikinn og veitti engum viðtöl eftir leikinn. Pirraður og svekktur var James í sínum eigin heimi og það hefur ýtt undir vangaveltur að hann sé farin að huga að því að yfirgefa Cleveland þegar samningur hans rennur út 2010. LeBron James skilaði frábærum tölum í einvíginu á móti Orlando en það dugði skammt. Hann var með 38,5 stig, 8,3 fráköst og 8,0 stoðsendingar að meðaltali í leikjunum sex á móti Orlando Magic. James hitti úr 48,7 prósent skota sinna í leikjunum en nýtti þó aðeins 29,7 prósent skota sinna fyri utan þriggja stiga línuna.
NBA Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Handbolti Fleiri fréttir Valur - Njarðvík | Meistararnir á Hlíðarenda Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Sjá meira