O´Neal og Marion skipta um heimilisfang 13. febrúar 2009 19:13 Jermaine O´Neal og Shawn Marion. NordicPhotos/GettyImages
Nú eru aðeins sex dagar þar til félagaskiptaglugginn í NBA deildinni lokast og nú í kvöld bárust fréttir af því að Toronto og Miami hefðu skipt á leikmönnum. Stóru nöfnin í skiptunum eru tveir fyrrum stjörnuleikmenn, sem skipta munu um heimilisfang nú um stjörnuhelgina í NBA deildinni. Toronto mun þannig senda kraftframherjann Jermaine O´Neal til Miami Heat ásamt framherjanum Jamario Moon og fær í staðinn framherjann Shawn Marion og bakvörðinn Marcus Banks. Þetta kom fram í nokkrum fjölmiðlum í Bandaríkjunum nú síðdegis, en skiptin bíða formlegs samþykkis frá forráðamönnum deildarinnar. Jermaine O´Neal hefur þrisvar verið valinn í stjörnuliðið en hann spilaði aðeins hluta úr tímabili með Kanadaliðinu. Tími hans þar var varðaður meiðslum eins og síðustu ár hjá kappanum, en hann var áður hjá Indiana Pacers. O´Neal er með 13,7 stig og 7 fráköst að meðaltali í 40 leikjum með Toronto í vetur. Shawn Marion hefur fjórum sinnum verið valinn í stjörnulið og lék lengst af með Phoenix Suns. Hann hefur skorað 12 stig og hirti 9 fráköst að meðaltali með Miami í vetur á sínu 10. ári. Hann fær 18 milljónir dollara í laun á árinu sem er hans síðasta á samningnum.
NBA Mest lesið Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Handbolti Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Handbolti Úr Bestu deild yfir í að slá í gegn í Meistaradeild: „Ég elska pressuna“ Fótbolti Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Fótbolti Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Fleiri fréttir Þola þeir ekki gott umtal? „Helmingur minna leikmanna skilur ekki íslensku“ „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sjá meira